Segja bönkunum frjálst að brjóta á rétti lántakenda BBI skrifar 18. október 2012 11:29 Lögbann verður ekki lagt á innheimtuaðgerðir Landsbankans. Mynd/GVA
Hagsmunasamtök heimilanna telja að sönnunarbyrði hafi verið snúið við í máli þeirra gegn Landsbankanum sem féll í vikunni. Samtökin höfðu krafist þess að lögbann yrði lagt á innheimu bankans á gengistryggðum ólögmætum lánum meðan óvissa ríkir um eftirstöðvar þeirra. Hæstiréttur hafnaði kröfunni. Rétturinn komst að því að ekki væru líkur á því að réttindi lántakenda færu forgörðum í þessum málum þó þeir greiddu mögulega of mikið af lánunum núna, ekki síst því bankinn hefur gefið yfirlýsingu um að hugsanlegar ofgreiðslur verði leiðréttar síðar ef niðurstöður dómstóla verða þær að skuldarar hafi greitt of mikið. Hagsmunasamtök heimilanna telja að niðurstaðan sé reist á þeim grundvallarmisskilningi að bankar geti ekki orðið ógjaldfærir (gjaldþrota). Yfirlýsingar bankans um endurgreiðslur síðar eru látnar duga sem trygging fyrir hagsmuni skuldara. Hagsmunasamtökin telja að í reynd hafi sönnunarbyrði verið snúið við í málinu. Lögmenn bankans hefðu þurft að sýna fram á gjaldfærni Landsbankans vegna væntanlegra endurkrafna en það hafi ekki verið gert. „Vafinn er til staðar og hann hefði átt að túlka í þágu neytenda," segir í tilkynningu. „Í ljósi þessa dóms virðist því miður sem Landsbankinn og aðrar fjármálastofnanir hafi frjálsar hendur um að brjóta á rétti lántakenda."
Tengdar fréttir Lögbann ekki lagt á Landsbankann Hæstiréttur hafnaði í dag kröfu Hagsmunasamtaka heimilanna og talsmanns neytenda um að lögbann yrði lagt á útsendingu Landsbankans á greiðsluseðlum vegna ólögmætra gengislána. Rétturinn staðfesti þar með niðurstöðu Héraðsdóms. 15. október 2012 17:05 Mest lesið Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Viðskipti innlent Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Sjá meira
Lögbann ekki lagt á Landsbankann Hæstiréttur hafnaði í dag kröfu Hagsmunasamtaka heimilanna og talsmanns neytenda um að lögbann yrði lagt á útsendingu Landsbankans á greiðsluseðlum vegna ólögmætra gengislána. Rétturinn staðfesti þar með niðurstöðu Héraðsdóms. 15. október 2012 17:05