Eigandi Viðskiptablaðsins skilar 14 milljóna hagnaði 10. október 2012 10:00
Myllusetur ehf., sem á og rekur Viðskiptablaðið og tengda fjölmiðla, hagnaðist um 14 milljónir króna í fyrra. Það er töluvert minna en árið áður en félagið hagnaðist þá um 20,9 milljónir króna. Ástæða samdráttarins er sú að fjármunatekjur drógust saman á síðasta ári, fjármagnsgjöld hækkuðu og félagið greiddi 2,8 milljónir króna í tekjuskatt, en það greiddi engan slíkan árið 2010. Þetta kemur fram í ársreikningi Mylluseturs sem var skilað inn til ársreikningaskrár í síðustu viku. Eigendur Mylluseturs eru Pétur Árni Jónsson, sem á 67 prósent, og Sveinn Biering Jónsson, sem á 33 prósent. Eignir Mylluseturs eru metnar á 56,8 milljónir króna og jukust um 8,3 milljónir króna á síðasta ári. Þar munar mestu um bifreið sem eignfærð var á árinu. Þorri eigna félagsins er sem áður í útistandandi viðskiptakröfum. Ekki var gerð tillaga um arðgreiðslu vegna síðasta árs og því styrktist eiginfjárstaða félagsins um sem nemur hagnaði þess. Bókfært eigið fé er 17,7 milljónir króna. Skuldir Mylluseturs voru 39,1 milljón króna um síðustu áramót. Þar af voru 22,5 milljónir króna vegna virðisaukaskatts, ógreiddra launa og launatengdra gjalda. - Þsj
Mest lesið Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Siggi til Varist Viðskipti innlent Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Sjá meira