Tal þarf að draga verulega saman 22. febrúar 2012 04:00 Áfrýjaði "Við áfrýjuðum þessari ákvörðun til áfrýjunarnefndar póst- og fjarskiptamála í síðustu viku og bíðum viðbragða þaðan um hvort hún standi. Þetta setur verulegt strik í reikninginn,“ segir Viktor Ólason, forstjóri Tals. Fréttablaðið/Eggert
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur ákveðið að Tal verði að lækka lúkningargjöld sín úr 12,5 í 5,5 krónur á mínútu. Frá og með næstu áramótum eiga þau síðan að lækka niður í 4,0 krónur á mínútu. Forstjóri fyrirtækisins segir að ákvörðunin setji verulegt strik í reikninginn hjá Tali, sem hefur áfrýjað henni. Tal hefur verið starfandi frá árinu 2006 en þorra þess tíma var fyrirtækið endursöluaðili á þjónustu Vodafone. Á árinu 2010 komu nýir eigendur að Tali og gerðu kaupleigusamning um farsímastöðu við Símann. Frá þeim tíma hefur Tal rukkað 12,5 krónur á mínútu í lúkningargjöld, en slík gjöld eru greidd þegar viðskiptavinir annarra símafyrirtækja hringja í viðskiptavini Tals. Á grundvelli þeirra breytinga sem urðu á viðskiptamódeli Tals þegar símstöðin var keypt vildu forsvarsmenn fyrirtækisins fá að rukka hin háu lúkningargjöld áfram í nokkur ár í viðbót áður en þau yrðu lækkuð í takt við það sem samkeppnisaðilar þeirra rukka. Í samtali við Markaðinn 26. október 2011 sagði Viktor Ólason, forstjóri Tals, að framtíðarrekstrarhæfi fyrirtækisins ylti á því hvernig PFS myndi meðhöndla kröfuna. Um miðjan janúar síðastliðinn tilkynnti PFS að stofnunin mæli fyrir því að lúkningargjald Tals lækki í 5,5 krónur á mínútu eigi síðar en 1. mars næstkomandi. Auk þess hefur PFS tekið ákvörðun um að lúkningargjöld allra íslenskra símafyrirtækja eigi að verða í mesta lagi 4,0 krónur frá og með 1. janúar 2013. Að sögn Viktors setur þessi ákvörðun verulegt strik í reikninginn hjá Tali. „Við áfrýjuðum þessari ákvörðun til áfrýjunarnefndar póst- og fjarskiptamála í síðustu viku og bíðum viðbragða þaðan um hvort hún standi. Þetta setur verulegt strik í reikninginn en við höfum haft tíma til að bregðast við og erum að vinna að nokkrum málum þar að lútandi." Viktor segir að ákvörðunin hafi strax tekið gildi en í henni eru ákvæði um að það sé hægt að fresta réttarfarsáhrifum hennar. Tal hefur sótt um slíkt þar til endanleg niðurstaða liggur fyrir í málinu. Samkvæmt Viktori skilaði Tal hagnaði á árinu 2011 en að ákvörðun PFS muni hafa þau áhrif að það þurfi að draga verulega saman í rekstri fyrirtækisins til að endar nái saman á þessu ári. „Við þurfum að endurhugsa okkar framtíðarstefnu. Félagið fór út í það að kaupa símstöð til að koma inn á þennan markað hafandi séð hvernig önnur fyrirtæki hafa verið afgreidd með ákveðinni lengd á lúkningarframkvæmdum til að ná fjárfestingu sinni til baka. Þessi ákvörðun kippir stoðunum undan því."
Fréttir Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira