Gagnaveitan verði seld í ár og skili OR milljörðum 29. febrúar 2012 00:01
viðskiptiÁætlanir Orkuveitu Reykjavíkur (OR) gera ráð fyrir 2 milljörðum króna vegna sölu eigna í ár, 5,1 milljarði árið 2013 og 1,9 milljörðum árið 2014. Stærsta eignin sem fyrirtækið gerir ráð fyrir að selja er Gagnaveita Reykjavíkur. Eftir á að samþykkja þá sölu, en starfsemi Gagnaveitunnar er skilgreind sem hluti af kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Gagnaveitan rekur ljósleiðaranet sem teygir sig frá Bifröst til Vestmannaeyja. Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir ákvörðun um sölu Gagnaveitunnar alfarið vera í höndum eigenda og stjórnar OR. „Áætlun gerir ráð fyrir að tekjur af sölunni komi inn í byrjun árs 2013, sem þýðir að selja þyrfti í lok þessa árs." OR þarf að greiða 30 milljarða króna af lánum á næsta ári og Bjarni segir að gríðarlega stór gjalddagi bíði strax eftir áramót. Sala gagnaveitunnar sé hugsaður til að standa skil á honum. Fyrirtækið seldi eignir fyrir 1.150 milljónir á árinu 2011, 150 milljónum meira en áætlanir gerðu ráð fyrir. Bjarni segir að í ár sé einnig ætlunin að selja Perluna, aðalstöðvar fyrirtækisins og fleira sem hann geti ekki tilgreint núna. Alls var 20 starfsmönnum fyrirtækisins sagt upp í gær. Að auki var skipulagi og verklagi breytt hjá fyrirtækinu og segir Bjarni það marka lok uppstokkunar. „Nú tekur við venjubundinn rekstur, hann ætlum við að reyna að stunda með sem bestum hætti þannig að við lendum ekki í því aftur að þurfa að moka skafl. Það þýðir ekki að það verði ekki uppsagnir, það er hluti af venjulegum rekstri fyrirtækja að einum og einum verði sagt upp." Ekki verði þó aftur fækkað í jafnstórum hópum.- kóp
Mest lesið „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira