Setja skilyrði fyrir kaupum 29. febrúar 2012 04:00 Stöðin var opnuð árið 2004 en rekstur hennar hefur ekki gengið sem skyldi. Mikill fjármagnskostnaður vegna byggingar hennar hefur leitt til þess að eigið fé eigendafélagsins var neikvætt um 555 milljónir króna í lok árs 2010. Fréttablaðið/vilhelm
Bandaríska sorpeyðingarfyrirtækið Triumvirate setur fram ýmis skilyrði sem þarf að uppfylla til að kauptilboð þess í sorpeyðingarstöðina Kölku í Helguvík gangi eftir. Á meðal þess sem Triumvirate fer fram á er að öll leyfi til að halda úti þeim rekstri sem fyrirtækið ætlar sér séu til staðar og að fyrir liggi vilji Reykjanesbæjar sem lóðareiganda til að heimila stækkun á verksmiðjunni. Þetta kemur fram í viljayfirlýsingu um kaup Triumvirate á Sorpeyðingarstöð Suðurnesja (SS), sem á og rekur Kölku. Fréttablaðið, sem greindi frá áformum fyrirtækisins í gær, hefur viljayfirlýsinguna undir höndum. Tilboð Triumvirate er upp á tíu milljónir dala, eða um 1,25 milljarða króna. Upphaflega gilti tilboðið til 29. febrúar, dagsins í dag, en það var framlengt um nokkra daga svo að eigendur Kölku gætu tekið afstöðu til málsins. Stöðin er í eigu Reykjanesbæjar, Grindavíkur, Sandgerðis, Garðs og Voga. Í samantekt úr viljayfirlýsingunni, sem KPMG vann, kemur fram að við frágang kaupsamnings muni Triumvirate taka yfir allar viðskiptaskuldir, áfallnar skuldir og skuldbindingar sorpeyðingarstöðvarinnar. Fyrirtækið mun einnig taka yfir, kjósi það svo, langtímaskuldir stöðvarinnar. Triumvirate getur valið hvort fyrirtækið greiðir fyrir kaupin með peningum eða með yfirtöku á langtímaskuldum, en SS skuldaði tæplega 1,3 milljarða króna í lok árs 2010 samkvæmt síðasta birta ársreikningi félagsins. Skuldir félagsins voru lækkaðar um 163 milljónir í fyrra. Því er ljóst að núverandi eigendur SS, sveitarfélögin á Suðurnesjum, munu fá lítið eða ekkert á milli í viðskiptunum. Þeim býðst þó að halda eftir eignarhlut að lágmarki 10% en að hámarki 33% ef vilji er fyrir því, en kaupverðið myndi lækka í takt við þann eignarhlut. Í yfirlýsingunni er skýrt tekið fram að kaupandinn muni „ekki taka yfir aðrar þær skuldbindingar sem á rekstrinum geta hvílt, s.s. skattskuldbindingar, umhverfisskuldbindingar og ábyrgðarskuldbindingar“. Á meðal þeirra skilyrða sem Triumvirate setur fyrir kaupunum er að fyrir þurfi að liggja allar upplýsingar „um leyfilegt umfang rekstursins og möguleika til stækkunar, séu þeir fyrir hendi“ auk þess sem fyrir þarf að liggja „vilji Reykjanesbæjar til að heimila stækkun á verksmiðjunni, þ.m.t. stækkun leigulóða ef þörf er á“. Endanlegt kaupverð og greiðslumáti er háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunnar á fjárhagslegum, rekstrarlegum og lagalegum þáttum SS, úttekt á framleiðslustöðinni sjálfri, að fyrir liggi öll leyfi til að Triumvirate geti haldið úti þeirri starfsemi sem það ætlar sér, að fyrir liggi upplýsingar um förgun ösku og að ásættanlegir samningar séu til staðar við sveitarfélög um áframhaldandi vinnslu á sorpi frá þeim. thordur@frettabladid.is
Mest lesið „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira