Skoðun

Viðtalstímar – gamaldags eða ekki?

Guðríður Arnardóttir skrifar
Karen Halldórsdóttir skrifar í Fréttablaðið og ræðir þar viðtalstíma bæjarfulltrúa í Kópavogi. Fram að þeim tíma þegar 20 mánaða meirihlutinn tók við í Kópavogi stóð bæjarbúum til boða að ná tali af hverjum bæjarfulltrúa tvisvar á ári í klukkustund í senn. Þessir tímar voru fremur illa nýttir þrátt fyrir að hafa verið auglýstir nokkuð reglulega í ljósvaka- og prentmiðlum. Á síðasta kjörtímabili mættu t.d. til undirritaðrar 5 bæjarbúar – í það heila.

Bæjarbúar sem þurfa að ná tali af bæjarfulltrúum einfaldlega senda þeim tölvupóst eða slá á þráðinn, við erum öll í símaskránni. Oftar en ekki óska bæjarbúar eftir því að fá að hitta okkur vegna tiltekinna mála og veit ég ekki til annars en það sé auðsótt mál, a.m.k. höfum við í Samfylkingunni aldrei vísað nokkrum manni á dyr.

Eftir kosningar 2010 var ákveðið að leggja af þessa reglulegu fundartíma bæjarfulltrúa og þess í stað bjóða hverjum og einum bæjarfulltrúa að ráða því með hvaða hætti hann helst vildi vera í samskiptum við bæjarbúa. Þar gátu menn valið hvort þeir höfðu reglulega viðtalstíma eða ekki. Undirrituð hefur t.d. verið með vikulega viðtalstíma sem kynntir eru á heimasíðu bæjarins og hefur það ekkert breyst þótt ég gegni nú ekki formennsku í bæjarráði lengur. Aðgengi bæjarbúa í Kópavogi að bæjarfulltrúum er afar gott og veit ég ekki annað en við öll séum boðin og búin að hitta bæjarbúa sé þess óskað, nú eða svara símanum liggi einhverjum eitthvað á hjarta. Það heyrðist heldur ekki múkk í Karen eða oddvita Sjálfstæðisflokksins á sínum tíma þegar þetta var lagt af.

Það að Karen skuli nú gera að yrkisefni sínu umræður um reglulega fundartíma bæjarstjórnar lýsir frekar mikilli málefnafátækt. Auk þess kýs hún að stilla málinu þannig upp að gagnrýni okkar á þetta fyrirkomulag sé vegna þess að við „nennum ekki“ að hitta bæjarbúa og þar veit hún auðvitað miklu betur.

Hafsteinn Karlsson gerði góðlátlegt grín að þessu afturhvarfi til fortíðar. Einkum vegna þess að nýr meirihluti keppist nú við að afnema allar þær stjórnsýsluumbætur sem fyrri meirihluti réðist í á 20 mánaða tímabili. Þar ætla þeir að fjölga nefndum bæjarins og þenja út stjórnsýsluna svo allt verði eins og það var þegar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur fóru síðast frá völdum. Okkur finnst það auðvitað dapurleg staðreynd að nú skuli menn keppast við að innleiða gamaldags stjórnsýslu að nýju í Kópavogi.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×