Herinn vildi fá öflugri vopn 23. mars 2012 01:00 Amadou Sanogo Leiðtogi valdaránsins ávarpar íbúa landsins í sjónvarpi.nordicphotos/AFP
Amadou Toumani Toure, forseti Malí, komst heilu og höldnu undan þegar herinn í landinu gerði þar valdarán í fyrrinótt. Herinn tók á sitt vald helstu valdastofnanir landsins. Stuttu síðar sáust hermenn bera sjónvarpstæki og önnur verðmæti út úr forsetahöllinni. Amadou Sanogo, leiðtogi valdaránsins, lýsti síðan yfir útgöngubanni í höfuðborginni Bamako. Malí er eitt af fáum Afríkuríkjum sem hafa nokkuð langa lýðræðishefð. Forsetakosningar áttu að verða í næsta mánuði en vaxandi óþolinmæði hefur gætt innan hersins gagnvart forsetanum, sem hefur ríkt í tæplega tvö fimm ára kjörtímabil. Einkum hefur hernum ekki þótt forsetinn og stjórn hans hafa útvegað hernum nógu öflugan vígbúnað gegn uppreisnarmönnum. Túaregar eru forn hirðingaþjóð sem býr víða í löndum í norðanverðri Afríku. Síðan Malí fékk sjálfstæði árið 1960 hafa þeir af og til gert uppreisn, nú síðast í byrjun þessa árs. Þessi nýjasta uppreisn hefur verið mun öflugri en oftast áður. Ástæðan er sú að túaregar frá Malí, sem höfðu verið í þjónustu Múammars Gaddafí í Líbíu, sneru heim vopnum hlaðnir eftir fall Gaddafís á síðasta ári og hafa verið drifkraftur uppreisnarinnar.- gb
Fréttir Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira