Skuldsett heimili dýpka og lengja kreppur 13. apríl 2012 11:00 AGS segir aðgerðir til að draga úr skuldsetningu heimila hafa stutt við efnahagsbata hér. Fréttablaðið/HAG
Kreppur verða langvinnari og dýpri eftir því sem heimili eru skuldsettari í aðdraganda þeirra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um skuldir heimila. Bornar eru saman skuldakreppur og fall eignaverðs víða um lönd á ólíkum tímum. Í skýrslu AGS kemur fram að endurfjármögnun banka í fjármálakreppu sé lykilatriði í glímunni við skuldavanda heimila. Í þeim samanburði komi Ísland vel út, til dæmis miðað við Kólumbíu árið 1999 og Ungverjaland í dag. „AGS klappar íslenskum stjórnvöldum lof í lófa fyrir að hafa brugðist við vanda heimilanna í kjölfar hrunsins með víðtækum almennum aðgerðum sem miðuðust við að draga úr skuldsetningu þeirra og koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot og algjört verðhrun á fasteignamarkaði,“ segir í umfjöllun Greiningar Íslandsbanka. Þó er í skýrslunni bent á að dýpra hafi verið á hvata heimila til að taka með samræmdum hætti þátt í áætlun um endurskipulagningu skuldavandans og afskriftaþörfin hafi aukist eftir því sem lengur var beðið. „Þá segir í skýrslu AGS að skilyrðislaus frestur nauðungarsölu og frysting lána hafi dregið úr hvatanum til að hraða lausn mála og tíðar breytingar á ramma endurskipulagningar skuldavandans hafi ýtt undir væntingar um enn rausnarlegri úrræði,“ segir á vef stjórnarráðsins.- óká
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira