AGS kallar eftir aðhaldssamari hagstjórn 16. apríl 2012 04:00 AGS kallar eftir því að ríkisútgjöld verði skorin niður um sem nemur hálfu prósenti landsframleiðslu.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetur til þess að stjórnvöld sýni meira aðhald í ríkisfjármálum og telur réttast að Seðlabankinn hækki stýrivexti vegna aukins verðbólguþrýstings. Þá telur sjóðurinn að gengi krónunnar gæti enn veikst nokkuð á næstunni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu AGS um íslenskt efnahagslíf sem kom út í síðustu viku en stofnunin gefur reglulega út slíkar skýrslur. Í skýrslunni kemur fram að Ísland sé hægt og bítandi að rétta úr kútnum eftir bankahrunið árið 2008. Til marks um það hafi hagvöxtur verið rúm 3 prósent á síðasta ári, knúinn af einkaneyslu og aukinni fjárfestingu. Þá hafi dregið úr atvinnuleysi en verðbólga sé þó enn of mikil. Eins og áður sagði leggur AGS til í skýrslunni að stjórnvöld grípi til frekari aðhaldsaðgerða í ríkisfjármálunum. Nánar tiltekið að stjórnvöld dragi úr útgjöldum hins opinbera um sem nemur hálfu prósenti af landsframleiðslu. Kallar AGS eftir þessum aðgerðum þar sem ríkisútgjöld hafi verið meiri á árinu en búist hafi verið við. Þá telur AGS að þrátt fyrir að krónan sé að öllum líkindum nokkuð undir jafnvægisraungengi sínu sé líklegt að gengið veikist enn frekar á næstunni. Það skýrist af þrýstingi vegna framvindu áætlunar um losun gjaldeyrishafta auk þess sem endurgreiðslur íslenskra fyrirtækja á erlendum skuldum hafi áhrif. Loks kallar AGS eftir frekari aðgerðum við endurskipulagningu skulda heimila og fyrirtækja þótt sjóðurinn leggi áherslu á að mikill árangur hafi náðst. Þá hvetur hann til frekari aðgerða til að styrkja eftirlit með fjármálakerfinu og draga úr veikleikum.- mþl
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Samstarf Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Viðskipti innlent Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira