Tíu prósentum minna í vexti 27. júlí 2012 04:00 Íslendingar greiddu tíu prósentum minna í vexti af íbúðalánum í fyrra en árið áður. Fréttablaðið/Stefán
Íslensk heimili greiddu rúmlega tíu prósentum minna í vexti af íbúðalánum árið 2011 en árið á undan. Þetta kemur fram í úttekt fjármálaráðuneytisins. Í fyrra nam vaxtakostnaður vegna íbúðakaupa tæpum 55 milljörðum króna, en árið 2010 greiddu Íslendingar rúmlega 61 milljarð í vexti af íbúðalánum. Vaxtabætur og vaxtaniðurgreiðsla sem koma til úthlutunar í ár eru af þeim sökum nokkuð lægri en í fyrra. Samtals er um að ræða 14,5 milljarða í ár samanborið við 18,3 milljarða í fyrra, sem er rúmlega fimmtungslækkun milli ára. Þannig fá íbúðaeigendur 26,6 prósent af vaxtakostnaði sínum endurgreidd í ár en fengu 30 prósent í fyrra. Stjórnvöld telja þessar tölur sýna fram á að margt hafi þróast heimilum í hag í þessum efnum. Breytingar á úthlutun vaxtabóta eftir hrunið og auknir fjármunir sem settir hafi verið í að bæta stöðu heimilanna hafi bætt stöðu „þeirra sem voru í veikastri stöðu". Vaxtakostnaður heimilanna vegna íbúðalána, að frádregnum vaxtabótum, nam í fyrra rúmum fjórum prósentum af skattskyldum tekjum, en var tæp fimm prósent árið 2010.- þj
Mest lesið Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Sjá meira