Arðgreiðslur: Fjármagnaðar með erlendum lánum 11. október 2012 00:00
Eigendur OR greiddu sér út háar arðgreiðslur og ábyrgðargjald og tóku eignarhlut í Landsvirkjun út úr fyrirtækinu á tímabilinu. Allt þetta veikti eiginfjárstöðu OR mikið. Úttektarnefndin kemst að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið grundvöllur fyrir þorra þessarra aðgerða. Í skýrslunni segir að frá árinu 2002 til ársins 2010 hafi eigendum OR verið greiddar 16,4 milljarðar króna í arð. Til viðbótar var samþykkt á árinu 2005 „að greiða eigendum svokallað ábyrgðargjald vegna ábyrgðar eigenda á skuldbindingum fyrirtækisins[...] samtals 2.005 millj.kr.". Nefndin telur arðgreiðslur hafa í reynd valdið því að erlendar lántökur hafi þurft að vera hærri og því megi „velta fyrir sér hvort eigendur hafi verið meðvitaðir, eða þeim verið kynnt, sú áhætta sem úttektir þeirra sköpuðu fyrirtækinu, þar sem færa má rök fyrir því að þær hafi í reynd verið fjármagnaðar með lánum í erlendri mynt". Úttektarnefndin fjallar sérstaklega um að stjórn OR hafi haldið áfram að greiða sér út arð á árunum eftir hrun. Í skýrslunni segir að „árið 2009, þegar óráðstafað eigið fé Orkuveitu Reykjavíkur er neikvætt, var allt að einu tekin ákvörðun um arðgreiðslur út úr fyrirtækinu. Einnig sýnir samanburður á úttektum eigenda við arðsemi eigin fjár, skort á samhengi greiðslnanna og ávöxtunar eigin fjár." Samtals greiddi Orkuveitan 1,6 milljarða króna í arð á árunum 2009 og 2010. Þá gagnrýndu margir viðmælendur nefndarinnar að eignarhluta í Landsvirkjun hefði ekki verið haldið í OR, í stað þess að flytjast yfir til Reykjavíkurborgar. Borgi seldi hann til ríkisins árið 2007 fyrir tugi milljarða.
Mest lesið Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Hvernig erfist séreignin? Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Sjá meira