Styrkleikaröðun gefin út fyrir Opna ástralska Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. janúar 2013 13:00 Novak Djokovic er í efsta sæti heimslistans í einliðaleik karla. Nordic Photos / Getty Images
Opna ástralska meistaramótið í tennis, fyrsta stórmót nýja ársins, hefst í næstu viku. Í dag voru gefin út styrkleikaröðun 32 bestu keppenda mótsins. Eins og vanalega er fyrst og fremst stuðst við heimslista Alþjóðatennissambandsins og er því Serbinn Novak Djokovic í efsta sæti í einliðaleik karla. Roger Federer er annar og Andy Murray þriðji. Þessir þrír hafa ásamt Spánverjanum Rafael Nadal borið höfuð og herðar yfir aðra í tennisheiminum síðastliðin ár en Nadal verður ekki með í Ástralíu vegna meiðsla. Victoria Azarenka frá Hvíta-Rússlandi er í efsta sæti styrkleikalistans í kvennaflokki. Maria Sharapova er önnur en á eftir henni kemur Serena Williams. Djokovic og Azarenka fögnuðu bæði sigri á þessu móti í fyrra en það voru jafnframt einu sigrar þeirra á stórmótum síðasta árs. Andy Murray kláraði árið með því að vinna gull á Ólympíuleikum og fagna svo sigri á Opna bandaríska meistaramótinu í september. Roger Federer vann hins vegar Wimbledon-mótið. Í kvennaflokki var Serena Williams nánast óstöðvandi á síðari hluta keppnistímabilsins. Hún vann Wimbledon-mótið, gull á Ólympíuleikunum og svo Opna bandaríska. Styrkleikaröðunin kemur í veg fyrir að bestu keppendur mótsins mætist innbyrðis í fyrstu umferðunum. Ef öll úrslitin fara eftir bókinni svokölluðu munu tveir bestu keppendurnir mætast í úrslitaviðureigninni. Styrkleikaröðunina má sjá í heild sinni hér.
Tennis Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki PSG - Barcelona | Tvö af bestu liðum Evrópu mætast Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Valur - Haukar | Hörkuslagur á Hlíðarenda „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Sjá meira