"Auðvitað fæ ég mér tattú" Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. apríl 2013 09:15 Rick Pitino fagnar ásamt leikmönnum sínum í nótt. Nordicphotos/Getty
74 þúsund áhorfendur troðfylltu Georgia Dome körfuboltahöllina í Atlanta í nótt þegar Louisville Cardinals lagði Michigan Wolverines í úrslitaleik NCAA háskólakörfuboltans. Lokatölurnar urðu 82-76 fyrir Louisville sem var stigi undir í hálfleik 38-37. Þetta er í þriðja skipti sem Louisville vinnur titilinn en liðið stóð einnig uppi sem sigurvegari 1980 og 1986. Körfuboltakeppnin nýtur gríðarlegra vinsælda vestanhafs og hjá körfuboltaáhugafólki um allan heim. Er talað um hið árlega „mars brjálæði" (e. march madness) þar sem merkja má lægra framlag á fjölmörgum vinnustöðum þar sem fólk hefur annað augað á gangi mála í leikjunum. Keppt er í hreinni útsláttarkeppni og þurfti Louisville að leggja sex skóla að velli á leið sinni að gullinu. Þjálfari liðsins, Rick Pitino, varð sá fyrsti í 75 ára sögu keppninnar til að vinna hana með tveimur liðum. Hann stýrði einnig Kentucky til sigurs árið 1996. Hann var hæstánægður með sína menn. Hann rifjaði upp áskorun þeirra fyrir keppnina þess efnis að hann fengi sér húðflúr færi liðið alla leið. „Auðvitað fæ ég mér tattú!" sagði Pitino.
Körfubolti Mest lesið Dásamar Albert og segir hann ráða hver taki vítin Fótbolti Sakaður um að öskra „Frjáls Palestína, ég vona að þið deyið“ Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu sturlað mark Emils frá miðju og Davíð bjarga stigi Íslenski boltinn Lést 26 ára gamall eftir baráttu við áfengi og þunglyndi Sport Gaf klárum boltastrák verðlaunin Fótbolti Martröð Pogba lokið en hvað tekur við? Fótbolti „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Enski boltinn Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti Sögulegt augnablik James feðga: „Mun aldrei gleyma þessu“ Körfubolti Onana haldið oftast hreinu Enski boltinn Fleiri fréttir Davíð dæmir hjá Dani í Skotlandi Sögulegt augnablik James feðga: „Mun aldrei gleyma þessu“ Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Frábær leikur Martins dugði ekki Völdu ekki Bronny af virðingu við LeBron „Hann gerir einhvern veginn alla í kringum sig betri“ Súrt tap í framlengdum leik hjá Tryggva Snæ og félögum Helena tekin inn í heiðurshöll TCU Telur að Thomas sé betri en Basile Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Njarðvík leikur í IceMar-höllinni „Verðum að vera harðari“ „Borgarnes-Bjarni grjótharður í þessum leik“ Uppgjörið: Grindavík - ÍR 100-81 | Grindavík of stór biti fyrir nýliðana Uppgjörið: Stjarnan - Valur 95-81 | Sigur gegn meisturunum í fyrsta leik Allir nema einn völdu Clark sem nýliða ársins Uppgjörið: Þór Þ. - Njarðvík 93-90 | Þór vann græna slaginn „Ennisbandið var slegið af honum“ Maté: Erum að fara að tapa fullt af leikjum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 101-108 | Hasar og læti í framlengdum leik í Forsetahöllinni Uppgjörið: Tindastóll - KR 85-94 | KR-ingar mættir aftur Uppgjörið: Haukar - Höttur 80-108 | Ótrúlega öruggur sigur Hattar í Hafnarfirði Martin mátti þola tap í fyrsta leik EuroLeague Finnur Freyr í bann fyrir lætin í Keflavík Teitur í Ljónagryfjunni: „Eitthvað við húsið og söguna sem náði því besta úr mönnum“ Gaz-leikur Pavels: Stanslaust djamm gegn bingókvöldi „Þetta var ekki fallegt en við tökum tvö stigin“ Aþena með tuttugu stiga sigur í nýliðaslagnum Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 71-64 | Baráttuglaðar Stjörnustúlkur lögðu Íslandsmeistarana Ljónagryfjan kvödd: „Hérna var sagan skrifuð“ Sjá meira