Kaupa þrjá sumarbústaði af slitastjórn Landsbankans Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. maí 2013 19:48 Þingvellir Mynd/ GVA.
Þingvallanefnd hefur keypt þrjá sumarbústaði af LBI, slitastjórn gamla Landsbankans, sem staðsettir eru í landi þjóðgarðsins á Þingvöllum. Samningar um þetta voru undirritaðir 29. apríl síðastliðinn en kaupverð var 34,5 milljónir króna. Sumarhúsin þrjú, Gjábakkaland 1, 3 og 5, eru þau einu sem standa neðan vegar í landi jarðarinnar Gjábakka á austurbarmi sigdældarinnar við Hrafnagjá. Húsin voru byggð á árunum 1967 og 1968 og hafa staðið ónotuð síðustu ár. Svæðið hefur mikla sérstöðu innan þjóðgarðsins, landið er tiltölulega ósnortið en skv. stefnumörkun þjóðgarðsins er fyrirhugað að í Gjábakkalandi verði upphaf gönguleiða og miðstöð annarrar útivistar í austanverðum þjóðgarðinum. „Þetta er mikilvægur áfangi í uppbyggingu þjóðgarðsins á Þingvöllum og í samræmi við stefnumörkun hans og tilmæli UNESCO", segir Álfheiður Ingadóttir, formaður nefndarinnar, í tilkynningu. „Við höfum átt í óformlegum viðræðum um þessi kaup frá 2011. Í fjárlögum 2013 er í 6. gr. heimild til að kaupa jarðir og sumarhús í landi þjóðgarðsins. Nefndin lagði einróma til við forsætisráðuneytið að hún yrði nýtt núna þegar þetta einstaka tækifæri gafst í þeim tilgangi að nýta svæðið til útivistar og náttúruskoðunar." Ofan vegar í Gjábakkalandi eru sex sumarhús í einkaeigu. Tvö önnur sumarhúsasvæði eru í þjóðgarðinum; við Valhallarstíg og á Rauðukusunesi í landi Kárastaða. Ekki er heimilt að reisa ný sumarhús í þjóðgarðinum.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Bankahólfið: Hógværir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Sjá meira