Hrávörur: Fiskimjöl besta fjárfestingin á eftir olíu 13. maí 2013 11:42
Á síðustu árum eða frá því að fjármálakreppan hófst í heiminum árið 2008 hefur fiskimjöl verið ein besta fjárfestingin næst á eftir olíu. Þetta má sjá á vefsíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar sem sýnd er verðþróun á ýmsum hrávörum til lengri og skemmri tíma. Vísitölur yfir einstakar hrávörur ná aftur til 1980 og fram til síðasta árs. Miðað er við að vísitölur fyrir þessar hrávörur séu 100 stig árið 1980. Ef olía og fiskimjöl er borið saman við ál, lambakjöt, eldislax og rækju kemur í ljós að frá árinu 1980 hefur olían nær þrefaldast að raunvirði og fiskimjölið hátt í tvöfaldast. Í báðum tilvikum hefur raunverð á olíu og fiskimjöli tekið kipp upp á við frá árinu 2008. Raunvirði hjá öllum hinum hrávörunum sem nefndar eru hér að framan hefur hinsvegar lækkað á sama tímabili. Þessar hrávörur eru teknar til samanburðar þar sem þær eru allir framleiddar hérlendis. Ef litið er á tímabilið frá 1980 og þar til í fyrra kemur í ljós að vísitalan fyrir rækju hefur lækkað um tæplega helming en hún stóð í rúmum 50 stigum í fyrra. Það þýðir að raunverð fyrir rækjuna hefur lækkað um nær helming. Hæst fór rækjuvísitalan í 150 stig skömmu eftir síðustu aldamót. Álvísitalan er rétt undir 100 stiga mörkunum í dag og því er raunverð þess nær hið sama og það var árið 1980. Vísitalan fyrir eldislax sýnir töluverðar sveiflur á síðustu ári. Hún náði yfir 100 stig árið 2011 en er í um 80 stigum í dag. Vísitala fyrir lambakjöt sýnir að raunvirði þess hefur hrapað á síðustu árum. Vísitalan náði hámarki árið 2008 í rúmlega 150 stigum. Í fyrra var vísitalan komin niður í tæp 70 stig.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Atvinnulíf Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Viðskipti innlent Stýrivextir óbreyttir Viðskipti innlent Bankahólfið: Hógværir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Sjá meira