Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Aktobe 1-0 | Blikar úr leik eftir vítakeppni Guðmundur Marinó Ingvarsson á Laugardalsvelli skrifar 8. ágúst 2013 15:11 Mynd/Arnþór
Breiðablik féll úr leik í þriðju umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld eftir vítaspyrnukeppni gegn Aktobe frá Kasakstan. Breiðablik vann leikinn 1-0 en Aktobe vann fyrri leik liðanna með sömu markatölu. Ekkert var skorað í framlengingunni og því þurfti vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit. Aktobe hóf leikinn betur en um miðbik fyrri hálfleiks venjulegs leiktíma sótti Breiðablik af krafti og sköpuðu nokkrum sinnum hættu upp við mark Aktobe áður en Finnur Orri Margeirsson skoraði eina mark leiksins. Sóknir Breiðablik komu flestar upp vinstri kantinn þar sem Kristinn Jónsson fór á kostum en eftir markið sótti Aktobe í sig veðrið en náði ekki að skapa hættu við mark Breiðabliks fyrr en um miðbik seinni hálfleiks þegar liðið fékk tvö færi en Gunnleifur gerði vel í markinu þegar á þurfti að halda. Mikið dró af Breiðabliki er leið á leikinn. Liðið lék undanúrslitaleik í bikar á milli leikjanna gegn Aktobe og voru margir leikmenn liðsins á síðustu dropunum undir lok venjulegs leiktíma. Engu að síður tókst liðinu að þrauka í gegnum framlenginguna og fékk auk þess frábært færi til að tryggja sér sigurinn í fyrri hálfleik framlengingarinnar en Andri Rafn Yeoman hitti ekki markið úr fínu færi. Aktobe fékk færi til að skora í seinni hálfleik framlengingarinnar en fundu ekki leiðina fram hjá Gunnleifi og því fór leikurinn í vítaspyrnukeppni. Aðeins varamaðurinn Nichlas Rohde náði að skora fyrir Breiðablik í vítakeppninni og því náði Breiðablik ekki að nýta sér að Aktobe klúðraði tveimur fyrstu spyrnum sínum. Grátlegt tap hjá Breiðabliki sem féll þó úr leik með sæmd. Nær því að komast áfram gat liðið ekki komist. Finnur: Leikplanið gekk fullkomlega upp„Svekkelsi fer fyrst í gegnum hugann eftir leikinn. Við erum að sjálfsögðu mjög stoltir af hverjum öðrum og ánægðir með þá frammistöðu sem við sýndum í dag,“ sagði Finnur Orri Margeirsson fyrirliði og markaskorari Breiðabliks eftir leikinn. „Leikplanið gekk eiginlega fullkomlega upp. Við pössuðum okkur á að halda markinu hreinu. Það gekk upp og við settum pressu á þá á þeim tímapunktum sem við ætluðum okkur og það gekk upp. Það vantaði herslumuninn. „Þeir eru með öflugt lið og pressuðu líka á okkur. Við tókum þetta í köflum. Settumst stundum aftar og pressuðum upp þá eins og við gerðum í framlengingunni. Mér fannst við setja pressu á þá í framlengingunni frekar en þeir á okkur. Um leið og við pressuðum á þá þá lentu þeir í veseni og náðu ekki að spila út og við leystum það ágætlega. „Þeir vilja spila mikið í stuttum sendingum og eru góðir í því. Við stóðumst flest áhlaupin þeirra,“ sagði Finnur Orri sem skoraði sitt fyrsta meistaraflokks mark í sínum 137. leik. „Það eru stærri hlutir sem skipta meira máli en ég neita því ekki að það var mjög gaman. „Menn taka sín víti og það er eins og það er. Það nær ekki lengra, skítur skeður,“ sagði Finnur Orri að lokum um vítakeppnina sem réði úrlitum í leiknum. Ólafur: Stoltið og ánægjan með vinnuframlagið yfirskyggir tapið„Þetta einvígi við Aktobe var frábært. Við fórum á gríðarlega erfiðan útivöll þar sem við töpum með marki úr víti á 89. mínútu. Við komum hér og gerum það sem þurfti til að koma okkur inn í einvígið,“ sagði Ólafur Kristjánsson sem segir engan leikmann í sínu liði vera blóraböggul þó fjögur af fimm vítum liðsins hafi farið forgörðum. „Þeir sem sitja uppi í stúku og hafa ekki tekið svona víti og segja hvernig sé hægt að klikka úr svona víti. Svona. Ég býð öllum að koma og taka svona víti. Ég kasta ekki ábyrgðinni á einn né neinn. Það er lukka frænka sem kemur stundum í heimsókn. Hún kom ekki í dag en gerir það einhvern tíman seinna. „Mér fannst leikurinn spilast vel og eins og ég hefði getað óskað mér. Við vorum með fjögurra manna varnarlínu í fyrri leiknum og lentum í basli á köntunum, sérstaklega hægra megin hjá okkur. Þar sóttu þeir stíft upp. „Í dag vorum við með fimm manna varnarlínu þegar við vörðumst aftarlega og náðum að loka miklu betur á þá og tveir framherjar gáfu okkur möguleika á skyndisóknum. Þetta mark var frábært. „Baráttan, hjartað og viljinn í mönnum var frábær. Skipulagið og aginn. Ég er mjög stoltur af liðinu. Stoltið og ánægjan með vinnuframlagið yfirskyggir sem betur fer þetta að tapa í vítakeppni. „Gæðalega áttum við í fullu tré við þetta Aktobe lið. Nú vinnum við úr þessu og tökum næsta skref að ári,“ sagði Ólafur brattur. „Þeir áttu ekki von á að við spiluðum eins og við gerðum því á köflum fórum við mjög hátt á þá og pressuðum þá. Það setti þá úr jafnvægi og það var hluti af taktíkinni að reyna að stressa þá. Ekki liggja bara til baka og leyfa þeim að hafa boltann,“ sagði Ólafur sem óttast ekki að lið sitt verði þreytt þegar liðið mætir FH á sunnudaginn í deildinni. „Hvar er þetta álag,“ grínaðist Ólafur. „Er það álag að spila þrjá leiki á viku í fimm vikur? Það er bara gleði. „Leikurinn gegn FH leggst gríðarlega vel í mig. Þar eru tvö frábær fótboltalið. FH-ingar voru gríðarlega flottir gegn Austria Vín í gær. Spiluðu góðan leik. Þeir halda svo flagginu á lofti fyrir íslenskan fótbolta áfram í Evrópukeppninni. Ég hefði gjarnan viljað vera með Breiðabliks liðið í þeim pakka en það verða tvö lið sem bítur ekkert á sem spila á sunnudaginn. Vandamálið er hjá okkur að ná árangri og hvergi annars staðar. Við mætum í leikinn fullir sjálfstraust,“ sagði Ólafur.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Kemur alltaf í Þór Íslenski boltinn Extraleikarnir: Nablinn varð náfölur og ældi endalaust eftir keppni Körfubolti Uppgjör: Ísland - Portúgal 62-60 | Frábær sigur Íslands Körfubolti „Fyrirgefðu mamma“ Enski boltinn Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City Fótbolti Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Fótbolti Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Fótbolti Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Fótbolti Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Enski boltinn „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Handbolti Fleiri fréttir „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Norska ævintýrið endaði með martröð í Portúgal Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Gamli Valsarinn valinn í danska landsliðið Isak sást á æfingu Liverpool Guðrún ætlar að slást við Fanneyju og Thelmu um titilinn Þurfa á fullkomnu kvöldi að halda Kemur alltaf í Þór Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið „Dyrnar eru alltaf opnar fyrir Messi“ „Fyrirgefðu mamma“ Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri Albert með mark og stoðsendingu í gríðarlega mikilvægum sigri Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Neymar ekki valinn í landsliðið en bæði Thiago og Endrick í hópnum Guðrún áfram í undanúrslitin með Hammarby Vona að þeir leysi vandamálin og Íran verði með á HM Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Sjá meira