Formúla 1

Schumacher í skíðaslysi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Schumacher varð sjö sinnum heimsmeistari í Formúlu 1.
Schumacher varð sjö sinnum heimsmeistari í Formúlu 1. Nordicphotos/Getty

Franskir fjölmiðlar greina frá því að ökuþórinn Michael Schumacher hafi slasast í skíðaslysi þar í landi.



Samkvæmt fjölmiðlinum Europe 1 var þýski heimsmeistarinn fyrrverandi fluttur á sjúkrahús vegna höfuðmeiðsla. Slysið átti sér stað á fjallasvæðinu Meribel í frönsku ölpunum þar sem Þjóðverjinn 44 ára gamli var á skíðum.



Schumacher var með hjálm og við meðvitund þegar hann var fluttur á sjúkrahús. Talið er að hann hafi líklegast fengið heilahristing.



Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Schumacher lendir í slysi. Hann lenti í 17 árekstrum á ferli sínum í Formúlu 1 og í kappakstri á Silverstone árið 1999 fótleggsbrotnaði hann.



Sá þýski lenti enn fremur í mótorhjólaslysi á Spáni árið 2009 og hefur verið slæmur í hálsi síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×