Menning

Tvíhöfðabræður búa til glænýtt grín

Freyr Bjarnason skrifar
Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson sömdu grínatriði fyrir söfnunarþátt Landsbjargar.
Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson sömdu grínatriði fyrir söfnunarþátt Landsbjargar. Fréttablaðið/Stefán
„Við settumst niður og kokkuðum upp ljómandi skemmtilegan karakter sem Jón mun leika,“ segir Sigurjón Kjartansson.

Borgarstjórinn Jón Gnarr leikur í grínatriðum sem voru tekin upp á skemmtistaðnum Harlem í gær og verða sýnd í söfnunarþætti Landsbjargar í Sjónvarpinu 31. maí. Sigurjón leikur ekki í atriðunum en kom að þeim sem handritshöfundur.

Þetta verður í fyrsta sinn sem þeir Tvíhöfðabræður vinna saman að nýju grínefni síðan þeir störfuðu sem útvarpsmenn fyrir nokkrum árum, eða áður en Jón varð borgarstjóri Reykjavíkur. „En maskínan fer í gang þegar við setjumst niður saman. Okkur hefur ávallt reynst mjög auðvelt að kokka eitthvað upp og við erum fljótir að því,“ segir Sigurjón.

Hann viðurkennir að erfitt hafi verið að finna tíma til að vinna með borgarstjóranum. „Mann hefði ekki grunað það á árum áður að maður hefði þurft að glíma við ritara til að hafa samband við hann en það er eitthvað mjög rétt við það. Við töluðum oft á þessum nótum einu sinni að hann þyrfti eiginlega að hafa einn svoleiðis alltaf við höndina. Núna er hann umkringdur slíku fólki. Það er allt ofsalega vel skipulagt hjá honum og ég er afskaplega glaður með það. Það er þungu fargi af mér létt því ég sá alltaf um bókanirnar og annað slíkt í gamla daga.“

Aðspurður hvort þeir ætli að semja eitthvað meira saman segir Sigurjón: „Örugglega einhvern tímann. Hann verður ekki borgarstjóri að eilífu. Við erum skapandi menn og það er ekki óeðlilegt að við leiðum saman hesta okkar aftur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.