Auglýsa gosdrykk á tunglinu Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. maí 2014 17:01 Hér má sjá hvernig Pocari Sweat dósin mun koma til með að líta út.
Japanskur orkudrykkjaframleiðandi verður fyrsta fyrirtækið til að auglýsa vöru sína á tunglinu. Otsuka Pharmaceutical, sem framleiðir drykkinn Pocari Sweat, mun skjóta dós af drykknum til tungslins á næsta ári. Drykkurinn verður sendur út í geiminn í duftformi og í sérstakri títaníum dós sem á að þola lendinguna á yfirborði tungslins. Dósin er einnig hönnuð til þess að þola miklar hitabreytingar á leiðinni og mikla rafsegulgeislun frá sólinni. Skilaboð frá 38 þúsund japönskum börnum verða grafin í yfirborð dósarinnar sem mun vega um eitt kíló. Geimferð dósarinnar er samvinnuverkefni bandaríska tæknifyrirtækisins Astrobotic Technology og singapúrska fyrirtækisins Astroscale. Áætlað er að hið 384 þúsund kílómetra ferðalag taki fjóra daga. Þegar dósin er komin til tunglsins verður henni komið fyrir í gígnum Lacus Mortis, eða „Vatni Dauðans". Frekari upplýsingar má nálgast á vef Sky News.
Mest lesið Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Viðskipti innlent Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Fleiri fréttir ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira