Súkkulaði- og bananasnittur Rikka skrifar 18. nóvember 2014 13:30 visir/sæunn
Á heimasíðu hugmyndir að hollustu er að finna margar girnilegar og einfaldar hollustuuppskriftir. Súkkulaði- og bananasnitturnar eru einstaklega bragðgóðar og auðvelt að leika eftir.Súkkulaði- og bananasnittur Botn 150 g kókosmjöl 300 g mjúkar döðlur 3 msk hrákakóKrem 3 bananar, vel þroskaðir 2 msk hrákakó 1 tsk hreint vanilluduft 5 þurrkaðar apríkósur Til að gera botninn byrjar þú á að blanda öllu gróflega saman í matvinnsluvél og þjappa svo öllu saman í botn móts eða disks. Ég nota ferkantað glerfat sem er 15×25 cm og það passar fullkomlega.Geymdu botninn í frysti á meðan þú snýrð þér að kreminu.Kremgerðin er einföld, þú þarft bara að setja allt hráefnið í matvinnsluvél og láta hana ganga í dágóða stund þar til blandan er mjúk og þétt. Gott er að smakka kremið því þér gæti þótt þurfa dálitla sætu til viðbótar, t.d. stevíu eða hlynsýróp. Kakan er svo sett í frysti í 2-3 tíma og ef hún klárast ekki strax í fyrstu atrennu geymist afgangurinn best í frystinum. Gott getur verið að hella hálfum poka af frosnum bláberjum yfir botninn áður en að kremið er sett á.
Eftirréttir Heilsa Uppskriftir Tengdar fréttir Hugarfarið breyttist á einni nóttu Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir sem heldur úti vef sem hún kallar Hugmyndir að hollustu, segir skyndilausnaloforð og niðursoðnar heilsurannsóknarfréttir einungis flækja leiðina að heilsufarslegri uppbyggingu. 2. nóvember 2014 10:00 Ómótstæðileg og bráðholl pizza Gómsæt uppskrift af bráðhollri og trefjaríkri pizzu 12. nóvember 2014 10:00 Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Lífið Slakur með 62 milljón króna hálsmen Tíska og hönnun Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið „Skelfileg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra áhrifaríkasta“ Lífið Ástin það besta í heiminum Tónlist „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið
Hugarfarið breyttist á einni nóttu Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir sem heldur úti vef sem hún kallar Hugmyndir að hollustu, segir skyndilausnaloforð og niðursoðnar heilsurannsóknarfréttir einungis flækja leiðina að heilsufarslegri uppbyggingu. 2. nóvember 2014 10:00
Ómótstæðileg og bráðholl pizza Gómsæt uppskrift af bráðhollri og trefjaríkri pizzu 12. nóvember 2014 10:00