Utanríkisráðherra veitir 32 milljónum til mannúðaraðstoðar Aðalsteinn Kjartansson skrifar 28. desember 2014 14:22 Peningarnir fara til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna og UNICEF. Vísir/AP/Vilhelm
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur tekið ákvörðun um að veita 32 milljónum króna til mannúðaraðstoðar. Framlögin fara til WFP, Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna, vegna mataraðstoðar við flóttamenn frá Sýrlandi og til UNICEF til baráttunnar gegn ebólu í Vestur-Afríku. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir Gunnar Bragi að mikil þörf sé á mataraðstoð til sýrlenskra flóttamanna en þeir séu nú yfir þrjár milljónir. Hætta þurfti mataraðstoð til 1,7 milljóna flótamanna á svæðinu þar sem sjóðir WFP voru uppurnir. Átak var gert og mataraðstoð komið aftur á en sjóðir WFP duga bara til að veita mataraðstoð fram í janúarmánuð, að því er segir í tilkynningunni. „Þá er einnig brýn þörf fyrir aðstoð í Vestur-Afríku þar sem ebóla hefur breiðst út, en börn eru sérstaklega í mikilli hættu á að sýkjast. Fjöldi barna á um sárt að binda vegna faraldursins, sem hefur gert þúsundir barna munaðarlaus,“ segir í tilkynningunni. Með framlaginu til UNICEF er brugðist við neyðarkalli stofnunarinnar til að berjast gegn faraldrinum og afleiðingum hans. Samkvæmt utanríkisráðuneytinu er þegar búið að veita 37 milljónir króna á árinu til baráttunnar gegn ebólufaraldrinum og 33 milljónir króna vegna ástandsins í Sýrlandi.
Alþingi Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Innlent Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Innlent Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Erlent Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Innlent Fleiri fréttir Segir málefnasamninginn ófjármagnað orðagjálfur Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Vilja skýrslu frá ráðherra um lokun flugbrautar Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Tíu ára stelpa frá Vík í úrslitum í Eurovision barna í Danmörku Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Stjórnsýsluúttekt á lokun flugbrautarinnar og endurgreiðsla styrkja Skora á fulltrúa sveitarfélaganna að greina frá sinni afstöðu „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Svona var blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Óljóst með skólahald eftir helgi Trans fólk veigri sér við ferðalögum til Bandaríkjanna Sjá meira