Innlent

Wired fjallar um Sigga hakkara

Jakob Bjarnar skrifar
Ásgeir ljósmyndari var upp með sér þegar menn frá Wired höfðu samband og föluðust eftir mynd eftir hann af Sigga hakkara, en sú gleði varð skammvinn.
Ásgeir ljósmyndari var upp með sér þegar menn frá Wired höfðu samband og föluðust eftir mynd eftir hann af Sigga hakkara, en sú gleði varð skammvinn. vísir/rósa/stefán

Wired-tímaritið vinnur nú að umfjöllun um Sigurð Inga Þórðarson sem flestir þekkja betur sem Sigga hakkara. Siggi var nýverið dæmdur í tveggja ára fangelsi mestan part vegna fjársvika, en hann og mál honum tengd hafa oft verið til umfjöllunar í íslenskum fjölmiðlum, en það er helst að maðurinn sé þekktur af endemum.



Nú virðist kastljós heimspressunar vera að beinast að honum, eða ef marka má Ásgeir Ásgeirsson ljósmyndara og verkefnastjóra hjá PressPhotos. Hann greinir frá því á Facebooksíðu sinni, nú fyrir stuttu að þeir hjá Wired-tímaritinu hafi haft samband við sig, en Wired er eitt þekktasta tímarit í heimi. „Blaðamaður þeirra sem er að vinna að einhverri grein um árið 2014 [og] vildu þeir afskaplega mikið fá mynd sem ég tók af títt nefndum Sigga Hakkara. Ég auðvitað var upp með mér að þeir sögðust ætla að hafa myndina á hálfri, jafnvel heilli síðu með myndtexta, enda ekki á hverjum degi sem svona „exposure“ er í boði,“ segir Ásgeir, en babb kom í bátinn þegar að samningaviðræðum kom.



„Samningar fóru alveg út um þúfur þar sem þeir buðu mér nafnið mitt í "credit" við myndina en fannst ómögulegt að þurfa að fara að greiða fyrir myndina góðu,“ segir Ásgeir... „enda yrði maður déskoti mikið meira blankur ef maður færi að gera það.“


Tengdar fréttir

Siggi hakkari fékk frest

Ákæra á hendur Sigurði Inga Þórðarsyni, sem oft er nefndur Siggi hakkari, var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness í morgun.

Ítarlegt viðtal við Sigga hakkara í Rolling Stone

Sigurður Ingi Þórðarsonar, betur þekktur sem Siggi hakkari, viðurkennir að hafa stolið og lekið gögnum Milestone, fyrirskipað árásir á heimasíður íslenskra stofnana og greinir frá því hvernig hann sveik Julien Assange í ítarlegu viðtali sem birt verður í tímaritinu Rolling Stone síðar í janúar.

Siggi hakkari dæmdur í fangelsi fyrir kynferðisbrot

Sigurður Ingi Þórðarson, eða Siggi hakkari eins og hann hefur verið kallaður, var sakfelldur í Hæstarétti fyrir kynferðisbrot með því að hafa með blekkingum tælt dreng, sem þá var 17 ára.

Siggi hakkari mætti fyrir dóm

Fyrirtaka var í máli Sigurðar Inga Þórðarsonar, oft nefndur Siggi hakkari, í Héraðsdómi Reykjaness í dag en þá lagði ákæruvaldið fram vitnalista.

Siggi hakkari í tveggja ára fangelsi

Sigurður Ingi Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari, hefur verið dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi.

Siggi hakkari játar brot sín

Brot Sigurðar Inga Þórðarsonar eru talin nema yfir þrjátíu milljónum króna en hann er ákærður fyrir fjársvik, fjárdrátt og þjófnað.

Siggi hakkari sakaður um að hafa svikið út lúxusbíla

Sigurður Ingi Þórðarson er sakaður um að hafa svikið út notkun á lúxusbílum á borð við Land Cruiser 150, Audi A6, Volvo XC90 og Ford Explorer. Allir bílarnir voru nýir þegar meint svik áttu sér stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×