Fannst ég verðskulda meiri hreinskilni Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. apríl 2014 08:00 Jakob Örn Sigurðarson verður örugglega áfram hjá Drekunum. Vísir/Valli „
Þetta verður ansi langt sumarfrí. Maður verður að finna sér eitthvað að gera,“ segir Jakob Örn Sigurðarson, landsliðsmaður í körfubolta, í viðtali við Fréttablaðið en Jakob og félagar hans í sænska úrvalsdeildarliðinu Sundsvall Dragons voru sendir í sumarfrí á miðvikudagskvöldið. Liðið tapaði þá í fjórða leik átta liða úrslita deildarinnar gegn Uppsala Basket en einvígið fór 3-1 fyrir Uppsala. „Við enduðum tveimur stigum fyrir ofan þá í deildinni en þeir voru mun betri en við í þessari seríu. Þeir voru betri í öllum leikjunum. Við náðum eiginlega bara að stela einum sigri. Í heildina eru þeir með betri mannskap og fleiri góða leikmenn,“ segir Jakob Örn, sem tapaði með Sundsvall í þriðja skiptið á fimm árum í átta liða úrslitum. „Þetta gerist alltaf annað hvert ár. Fyrsta árið töpuðum við í 8-liða, svo fórum við í úrslit og unnum, eftir það töpuðum við í 8-liða, svo fórum við aftur í úrslit í fyrra og nú þetta aftur. Ef við förum ekki alla leið finnst okkur greinilega bara betra að láta henda okkur út strax,“ segir Jakob Örn kátur í bragði og hrærir í súpu sem hann er að elda fyrir fjölskylduna.Jakob Örn og Hlynur Bæringsson eru lykilmenn í liði Sundsvall.Vísir/ValliMjög erfitt fyrir áramót Mikið gekk á hjá Drekunum á tímabilinu en félagið er í miklum fjárhagsvandræðum. Í lok október kom tilkynning frá sænska körfuknattleikssambandinu þar sem sagt var að Sundsvall fengi þrjá mánuði til að koma fjármálum sínum í lag ellegar fengi félagið ekki að taka þátt í deildinni næsta vetur. Með liðinu leika tveir aðrir Íslendingar, Hlynur Bæringsson og Ægir Þór Steinarsson. „Þetta er búið að vera bölvað strögl – jafnt innan sem utan vallar. Kaninn fór heim eftir fjóra leiki og við spiluðum þetta bara á okkur Íslendingunum og Svíum. Það var mikið af ungum strákum sem var hent í djúpu laugina. Miðað við það getum við verið sáttir við árangurinn í deildinni,“ segir Jakob Örn, en utan vallar áttu leikmennirnir eðlilega erfitt. „Þetta var aðallega erfitt fyrir jól, svona fyrst þegar þetta gerðist og í svona einn og hálfan mánuð eftir það. Eftir jól komumst við yfir þetta og byrjuðum að spila vel. Þá voru menn hættir að spá í þetta en menn eru samt alltaf að tala um þetta sín á milli. Það var í gangi allt árið.“Ekki var alltaf komið hreint fram við Jakob.Vísir/ValliSvikin loforð Þrátt fyrir erfiðleika í fjármálum stóðu forsvarsmenn Drekanna við sitt þegar kom að útborgun í hverjum mánuði en það skiptir fjölskyldumann eins og Jakob miklu máli. „Þeir borguðu alltaf sitt og ég gerði auðvitað mitt. Þegar maður er með fjölskyldu hugsar maður fyrst um hana,“ segir hann. Jakob er búinn að vera hjá Sundsvall í fimm ár og hefur liðið vel enda lykilmaður og algjör stjarna í deildinni. Samskiptin hafa verið góð á milli hans og yfirmanna félagsins en breyting varð á þegar þeir sögðu ekki alltaf satt og rétt frá í tengslum við peningamál félagsins. „Það var nú stundum ekkert komið hreint og beint fram við mann. Það er svona það sem maður er helst svekktur með. Það var alltaf sagt að nú færi eitthvað að gerast eins og með styrktaraðila en það gerðist ekkert. Ég er búinn að vera hérna í fimm ár og fannst ég verðskulda meiri hreinskilni. Fyrstu árin hérna hafa verið fín en þetta er svona fyrsta árið sem mér fannst maður ekki vera að hugsa um alveg réttu hlutina. Maður var að láta hluti sem ekki eiga að hafa áhrif á mann gera það. Sérstaklega þar sem maður er með fjölskyldu,“ segir Jakob Örn.Jakob Örn er lykilmaður í landsliðinu.Vísir/StefánVerður samt áfram Þrátt fyrir samskiptabresti og erfiðleika utan vallar ætlar Jakob að vera áfram hjá Sundsvall á næsta tímabili hafi félagið áhuga og tök á því að halda honum. „Ég er með samning út apríl núna og svo út næsta tímabil. Í rauninni verð ég áfram nema þeir geri ekki upp við mig. Ég er með klausu í samningnum um að ef þeir standi ekki við sitt innan ákveðins tíma geti ég farið. Eins og er þá verð ég áfram hjá liðinu – það er bara undir þeim komið hvað þeir gera. Ef þeir standa sig þá verð ég áfram,“ segir Jakob, sem hefur annars ekki miklar áhyggjur af því að finna sér nýtt lið í Svíþjóð enda árlega kjörinn einn af bestu leikmönnum deildarinnar. „Maður kíkir ekkert í kringum sig þegar maður er með samning í körfuboltanum. Þetta er kannski aðeins öðruvísi en í öðrum íþróttum. Ég er samt alveg rólegur og hef engar áhyggjur af því ef ég þarf að finna mér lið í Svíþjóð. Ég er held ég sé með alveg nógu gott orðspor hérna í Svíþjóð og ætti að geta fundið mér nýtt lið,“ segir Jakob Örn Sigurðarson.
Körfubolti Tengdar fréttir Hlynur: Meira en til í að vera áfram Hlynur Bæringsson var valinn besti varnarmaður sænsku úrvalsdeildarinnar annað árið í röð. Hann segir stemninguna hjá Sundsvall vera skemmtilegri eftir að liðið lenti í fjárhagskröggum. 1. apríl 2014 06:00 Uppsala sendi Drekana í sumarfrí Sundsvall Dragons er úr leik í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir þriðja tapið gegn Uppsala Basket á útivelli í kvöld. 2. apríl 2014 16:26 Mest lesið Dásamar Albert og segir hann ráða hver taki vítin Fótbolti Sakaður um að öskra „Frjáls Palestína, ég vona að þið deyið“ Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu sturlað mark Emils frá miðju og Davíð bjarga stigi Íslenski boltinn Lést 26 ára gamall eftir baráttu við áfengi og þunglyndi Sport Gaf klárum boltastrák verðlaunin Fótbolti Martröð Pogba lokið en hvað tekur við? Fótbolti „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Enski boltinn Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti Sögulegt augnablik James feðga: „Mun aldrei gleyma þessu“ Körfubolti Onana haldið oftast hreinu Enski boltinn Fleiri fréttir Davíð dæmir hjá Dani í Skotlandi Sögulegt augnablik James feðga: „Mun aldrei gleyma þessu“ Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Frábær leikur Martins dugði ekki Völdu ekki Bronny af virðingu við LeBron „Hann gerir einhvern veginn alla í kringum sig betri“ Súrt tap í framlengdum leik hjá Tryggva Snæ og félögum Helena tekin inn í heiðurshöll TCU Telur að Thomas sé betri en Basile Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Njarðvík leikur í IceMar-höllinni „Verðum að vera harðari“ „Borgarnes-Bjarni grjótharður í þessum leik“ Uppgjörið: Grindavík - ÍR 100-81 | Grindavík of stór biti fyrir nýliðana Uppgjörið: Stjarnan - Valur 95-81 | Sigur gegn meisturunum í fyrsta leik Allir nema einn völdu Clark sem nýliða ársins Uppgjörið: Þór Þ. - Njarðvík 93-90 | Þór vann græna slaginn „Ennisbandið var slegið af honum“ Maté: Erum að fara að tapa fullt af leikjum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 101-108 | Hasar og læti í framlengdum leik í Forsetahöllinni Uppgjörið: Tindastóll - KR 85-94 | KR-ingar mættir aftur Uppgjörið: Haukar - Höttur 80-108 | Ótrúlega öruggur sigur Hattar í Hafnarfirði Martin mátti þola tap í fyrsta leik EuroLeague Finnur Freyr í bann fyrir lætin í Keflavík Teitur í Ljónagryfjunni: „Eitthvað við húsið og söguna sem náði því besta úr mönnum“ Gaz-leikur Pavels: Stanslaust djamm gegn bingókvöldi „Þetta var ekki fallegt en við tökum tvö stigin“ Aþena með tuttugu stiga sigur í nýliðaslagnum Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 71-64 | Baráttuglaðar Stjörnustúlkur lögðu Íslandsmeistarana Ljónagryfjan kvödd: „Hérna var sagan skrifuð“ Sjá meira
Hlynur: Meira en til í að vera áfram Hlynur Bæringsson var valinn besti varnarmaður sænsku úrvalsdeildarinnar annað árið í röð. Hann segir stemninguna hjá Sundsvall vera skemmtilegri eftir að liðið lenti í fjárhagskröggum. 1. apríl 2014 06:00
Uppsala sendi Drekana í sumarfrí Sundsvall Dragons er úr leik í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir þriðja tapið gegn Uppsala Basket á útivelli í kvöld. 2. apríl 2014 16:26