Menning

Hin svokölluðu skáld

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Við vonumst til að ljóðið geti notið sömu virðingar og aðrar listgreinar að því leyti að fólk sé tilbúið að opna budduna vegna þess,“ segir Bjarki.
"Við vonumst til að ljóðið geti notið sömu virðingar og aðrar listgreinar að því leyti að fólk sé tilbúið að opna budduna vegna þess,“ segir Bjarki. Fréttablaðið/GVA
„Við köllum okkur „hin svokölluðu skáld“. Þó við vinkum „listaskáldunum vondu“ sem fylltu Háskólabíó árið 1976 þá stelum við ekki nafninu þeirra, bara notum sama sal og stelum kynninum þeirra,“ segir Bjarki Karlsson, einn þeirra sem standa fyrir ljóðadagskrá í Háskólabíói á laugardaginn klukkan 14.

Bjarki segir um háttbundinn kveðskap verða að ræða. „Við stuðlum allt og rímum flest. Erum sem sagt hvorki atómskáld né póstmódernistar heldur beitum þessum fornu stílbrögðum á persónulegan hátt og tölum við samtíma okkar, ekki fortíðina. Við getum kallað þetta nýtt vín á gömlum belgjum.“

Þið kallið ykkur „hin svokölluðu skáld“. Er ekki minnimáttarkennd í því gagnvart þeim sem nota hið frjálsa form?

„Nei, þetta er svipað og það er talað um „hið svokallaða hrun“, við erum einmitt með nafninu að gefa í skyn að við séum aðeins meira en „svokölluð“.“

Salurinn í Háskólabíói tekur um það bil eitt þúsund manns í sæti.



„Þetta er kannski svolítill glannaskapur hjá okkur en okkur bara datt þetta í hug og höfum enga styrki fengið, hvorki frá ríki né borg og við ætlum að selja inn. Ef enginn mætir þá bara töpum við sjálf,“ segir Bjarki.

„En fólk borgar inn á leiksýningar, dans, myndlist og tónleika. Við vonumst til að ljóðið geti notið sömu virðingar og aðrar listgreinar að því leyti að fólk sé tilbúið að opna budduna vegna þess,“ segir Bjarki.



Ljóðskáldin sem koma fram eru:

Davíð Þór Jónsson, Sigrún Haraldsdóttir, Valdimar Tómasson, Teresa Dröfn Njarðvík, Aðalsteinn Svanur Sigfússon, Snæbjörn Ragnarsson (Bibbi í Skálmöld), Þórunn Erlu Valdimarsdóttir, Örlygur Benediktsson, Eva Hauksdóttir og Bjarki Karlsson.

Kynnir er Sigurður Karlsson, leikari og þýðandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.