Á æskuárum sínum hafði Mohammed Emwazi gaman af bandarísku sjónvarpsþáttunum Simpsons og dreymdi um að spila knattspyrnu með Manchester United. Málin þróuðust hins vegar á allt annan veg og nú er Emwazi orðinn að hataðasta manni Bretlandseyja.
Breskir fjölmiðlar hafa dregið upp mynd af hinum 27 ára Emwazi, manninum sem birst hefur í aftökumyndböndum ISIS.
Emwazi fæddist í Kuveit árið 1988 en flutti til Bretlands sex ára gamall þar sem hann ólst upp í North Kensington í London. Hann lærði upplýsingatækni í Westminster-háskóla en á að hafa komist í kynni við íslamska öfgamenn í heimsókn sinni til Tansaníu árið 2009. Bresk yfirvöld telja að hann hafi þá gengið til liðs við hryðjuverkasamtökin al-Shabaab í Sómalíu.
Eftir að bresk öryggisyfirvöld höfðu fylgst með honum flúði hann til Kúveit þar sem hann tók upp nýtt nafn, Mohammed al-Ayan. Hélt hann til Sýrlands árið 2013 og gekk þá til liðs við ISIS.
Emwazi hlaut viðurnefnið Jihadi John eftir að gísl sem hafði verið í haldi samtakanna og verið sleppt, sagði böðullinn á myndböndunum hafa verið í hópi sem gekk undir nafninu „The Beatles“. Emwazi var svo kallaður John í höfuðið á John Lennon.
Emwazi kom fyrst fyrir í myndbandi ISIS í ágúst síðastliðinn þar sem bandaríski blaðamaðurinn James Foley var tekinn af lífi. Hann á einnig að hafa birst í myndböndum þar sem bandaríski blaðamaðurinn Steven Sotloff, breski hjálparstarfsmaðurinn David Haines, breski leigubílstjórinn Alan Henning og bandaríski hjálparstarfsmaðurinn Abdul-Rahman Kassig voru teknir af lífi.
Í síðasta mánuði kom svo Emwazi aftur fyrir í myndböndum þar sem japönsku gíslarnir Haruna Yukawa og Kenji Goto voru teknir af lífi.
Í gömlum skólabókum birtist mynd af Emwazi sem drengur sem finnst snakk gott, hefur gaman af hljómsveitinni S Club 7, PlayStation, auk þess að framtíðardraumur hans sé að leika knattspyrnu með Manchester United.
Á fullorðinsárum Emwazi hafa hins vegar nú birst myndbönd af honum, klæddum í svörtum fötum, grímuklæddur og með hníf í hendi, reiðubúinn að skera höfuðið af gíslunum.
Bandarísk yfirvöld hafa heitið hverjum þeim sem kemur með upplýsingar sem leiða til handtöku Emwazi tíu milljónir Bandaríkjadala.
Erlent