Til stendur að breyta reglum um aðgengi Íslendinga að skemmtiferðaskipum Jakob Bjarnar skrifar 3. júní 2015 15:17 Kampakátir ráðamenn og eigandi. Sigmundur Davíð, Guðmundur og Ragnheiður Elín sjá fram á góða, nýja og virðisaukandi viðbót í ferðaþjónustu á Íslandi. visir/gva
Nokkrir helstu ráðamenn þjóðarinnar og fjölmiðlar mættu til móttöku í skemmtiferðaskipinu MS Ocean Dimond í Reykjavíkurhöfn í hádeginu í dag; þar sem nýr kostur í ferðaþjónustu var kynntur. Og má þetta heita söguleg stund því ekki hefur farþega- eða skemmtiferðaskip siglt frá Íslandi lengi, eða allt frá tímum Gullfoss, Heklu og Esju – tímar sem margir sjá í rósrauðum bjarma. En, galli er á gjöf Njarðar því Íslendingar mega ekki kaupa sér miða með skipinu. Þetta er vegna tollalaga en ráðherra ferðamála, Ragnheiður Elín Árnadóttir, boðaði það hins vegar, í stuttu ávarpi að hún myndi laga þetta í samstarfi við aðra ráðherra. „Þetta eru reglur sem verður að laga því það er óásættanlegt að Íslendingar geti ekki farið með skipinu. Við munum laga þetta,“ sagði Ragnheiður Elín, eða „fix it“ – en ávörp voru flutt á ensku.Ocean Diamond er glæsilegt skemmtiferðaskip. Það mun sigla í tíu daga ferðum umhverfis landið í allt sumar og tekur skipið 220 farþega.visir/gva„We will fix it“Siglingar hefjast um landið með skemmtiferðaskipinu og eru þær á vegum Iceland Pro Travel, en eigendur þess fyrirtækis eru Guðmundur Kjartansson og Anne-Cathrin Brocker. Heimahöfn skipsins er Reykjavík og var það sérstaklega innsiglað með athöfn þar sem hinn norski skipsstjóri tók við blómvendi sem Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, afhenti. Skipið fer hringinn í kringum landið, í tíu daga ferðum með viðkomu í níu höfnum og þaðan eru svo farnar ferðir á fjöll og athyglisverða staði; ævintýraferðir. Ásamt Ragnheiði Elínu voru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Anna Sigurlaug Pálsdóttir, kona hans, viðstödd athöfnina auk Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Ragnheiður Elín sagðist, við þetta tækifæri, fagna því mjög að til stæði að gera skipið út í siglingum um Ísland, þetta væri mikill virðisauki fyrir ferðaþjónustuna og þá um land allt. Þetta væri einmitt málið og í takti við stefnu ríkisstjórnarinnar í ferðamálum: Að beina ferðamannastraumi um landið allt en ekki bara að þeir kæmu til Reykjavíkur. Þetta væri fallegt skip, reksturinn íslenskur og lagt væri uppúr íslenskri framleiðslu, menningu og hefð. Og, svo boðaði Ragnheiður það að lögum og reglum yrði breytt þannig að Íslendingum væri gert kleift að fara með skipinu.Guðmundur eigandi ávarpar gesti. Skipið er allt hið glæsilegasta en myndin er tekin í sérstökum samkomusal þar sem móttakan var.visir/gvaGjöld og skattar til íslenska ríkisinsDagur borgarstjóri ávarpaði samkomuna, fagnaði mjög því að heimahöfn skipsins yrði í Reykjavík og hann hefði reynt að fá tímann lengdan, þann sem skipið dveldi í höfn því sannarlega væri vert að fara um landið að vetrarlagi. Dagur sló jafnframt á létta strengi, sagði létt verk að laga þessi ólög varðandi aðgengi Íslendinga, einfaldlega með því að ganga í Evrópusambandið. Ummæli hans féllu í misgrýttan jarðveg, þannig var ekki að sjá að forsætisráðherra hefði mikinn húmor fyrir þessu gríni Dags. En, það hýrnaði hins vegar yfir flestum viðstöddum þegar undirstrikað var, af hálfu eigenda í ávarpi, að þetta væri nýtt að því leyti til að fyrirtækið væri íslenskt og öll gjöld færu þannig til íslenska ríkisins.Gísli Gíslason hjá Faxaflóahöfnum afhendir Knúti, hinum norska skipsstjóra, blómvönd og innsiglar það að Reykjavík er heimahöfn skipsins.visir/gvaGuðmundur, annar eigenda, hefur verið búsettur í Hamborg undanfarin 20 ár þar sem hann hefur starfað í við ferðamál. Hann segir, í samtali við blaðamann Vísis, að þetta hafi verið lengi í undirbúningi, þrjú ár. Mestur tíminn hafi farið í að finna rétta skipið, sem komist þá í þær hafnir sem til standi að heimsækja. Eina höfnin sem MS Sea Diamond komist ekki í er Flatey, en þangað verður farið í Zodiac-gúmmíbátum, en 20 slíkir eru í skipinu. Skipið er í eigu þriggja Dana og er leigt til þessa verkefnis.1,2 milljónir fyrir miðannGuðmundur er afskaplega ánægður með viðtökurnar, segir að þegar séu 70 prósent ferðanna í sumar seld, sem telst mjög gott á 1. ári reksturs sem þessa. „Fyrsta árið er alltaf töff,“ segir Guðmundur. Í rekstri sem þessum sé reiknað með því að fyrsta árið sé rekið með tapi, annað sé í járnum og svo geti menn farið að sjá fram á hagnað. En, þetta líti mjög vel út með árið í ár, sem og næsta ár.Eigandinn í brúnni. Honum þykir reglurnar um að Íslendingar geti ekki ferðast með skipinu vegna tollalaga, afskaplega skrítnar.visir/gvaSkipið tekur 220 farþega, farið verði í tíu daga ferðir hringinn um landið og svo í haust verður boðið uppá siglingar til Grænlands. Verð er frá 3 þúsund Evrum á mann, sem leggur sig á 450 þúsund krónur en nær alveg uppí 8 þúsund Evrur, sem er um 1,2 milljón – þá fyrir svítur. Þetta er ný tegund ferðamennsku, nýir ferðamenn og spurður segir Guðmundur helmingur ferðamanna sem keypt hafa ferðir þýskumælandi, þá frá Þýskalandi og Sviss og svo eru það farþegar frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Kanada.
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira