Lífið

Fljótlegasta leiðin til að misbjóða Íslendingi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Vonandi hafa þessir gestir sundlaugarinnar á Akureyri baðað sig rækilega áður en þeir stungu sér til sunds.
Vonandi hafa þessir gestir sundlaugarinnar á Akureyri baðað sig rækilega áður en þeir stungu sér til sunds. vísir/auðunn
Ferðamenn sem koma til Íslands ættu að fara í sturtu áður en þeir fara ofan í sundlaugar, fara úr skónum þegar þeir eru innandyra og ekki kvarta yfir veðrinu ætli þeir sér að falla í kramið hjá heimamönnum.

Svo segir í það minnsta greinarhöfundur hjá hinum sívinsælu og virtu ferðbókum Lonely Planet á heimasíðu fyrirtækisins.

Þar greinir Alexis Averbuck frá því hvað erlendir ferðamenn ættu að hafa í huga þegar heimsækja landið enda geti feilspor á Íslandi haft margvíslegar og misalvarlegar afleiðingar.

Misstígi ferðamenn sig gætu þeir átt von á því að eyðileggja óspillta náttúruna, svo ekki sé minnst á ganga gjörsamlega fram af heimamönnum segir Averbuck. „En það gæti einnig verið lífshættulegt bæði fyrir gestinn sem og björgunarsveitirnar sem kallaðar eru út til að bjarga þeim,“ bætir höfundurinn við.

Því næst kemur hann með 14 ráðleggingar til ferðamanna sem hyggjast sækja landið heim og kennir þar ýmissa grasa.

Gestir landsins þurfa að sýna því skilning að Íslendingar eigi erfitt með að ráða við hinn mikla ferðamannaflaum sem streymir nú til landsins, þeir ættu ætíð að hafa tíðar veðurbreytingar á Íslandi í huga, vera vel útbúnir og keyra ekki utanvegar svo nokkur dæmi séu nefnd.

Einnig skemmir ekki að hafa almenna skynsemi í huga þegar ferðast er um landið, ýmsar hættur leynast í íslenskri náttúru og því er það kannski ekki sniðugt að keyra upp á jökul á illa útbúnum bílaleigubílum, eins og þessi fimm manna fjölskylda gerði sig seka um í ágúst á síðasta ári.

Þá varar Averbuck við því að Íslendingar hafi takmarkaða þolinmæði fyrir óhreinlæti, sérstaklegar þegar sundlaugarferðir eru annars vegar.

„Hvort sem þú ert að heimsækja hið fræga Bláa lón eða hina afskekktu Krossneslaug þá er fljótlegasta leiðin til að miðsbjóða Íslendingi að vera skítugur þegar maður stekkur ofan í. Þú ættir einnig að fara úr skónum og setja þá í skóhillurnar þegar þú labbar inn í sundklefann,“ segir höfundurinn.

Úttekt Averbuck í heild sinni má nálgast hér.


Tengdar fréttir

Hlógu að nöktum syni sínum í kuldakasti og sjálfheldu

„Eftir á tók ég alveg hárblásarann á fjölskylduna og leyfði þeim að heyra hvað mér þætti þetta heimskulegt og þau væru öll kandidatar í Darwins-verðlaunin 2014,“ segir Einar Ásgeir Sæmundsson, fræðslufulltrúi Þjóðgarðsins á Þingvöllum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.