Eygló Ósk setti Íslandsmet og komst í undanúrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2015 07:55 Eygló Ósk Gústafsdóttir. Vísir/Andri Marinó
Ægiringurinn Eygló Ósk Gústafsdóttir tryggði sér í morgun sæti í undanúrslitum í 200 metra baksundi á Heimsmeistaramótinu í 50 metra laug í Kazan í Rússlandi. Eygló Ósk synti 200 metrana á 2:09.16 mínútum og bætti Íslandsmet sitt síðan á Íslandsmeistaramótinu í apríl þegar hún synti þetta sund á 2:09.36 mínútum. Eygló Ósk náði fjórða besta tímanum í undanrásunum og gerir sér vonir um að komast í úrslit þegar undanúrslitin fara fram í kvöld. Eygló Ósk var 1.99 sekúndum á eftir hinni ungversku Katinku Hosszu sem náði besta tímanum en bandaríska sundkonan Missy Franklin varð önnur og hin kanadíska Dominique Bouchard var með þriðja besta tímann. Þetta er önnur greinin á mótinu þar sem Eygló Ósk kemst í gegnum undanrásirnar og í undanúrslitin en því náði hún einnig í 100 metra baksundi. Eygló Ósk varð önnur í sínum riðli þar sem hún kom í mark á nákvæmlega sama tíma og sautján ára rússnesk sundkona, Daria Ustinova. Þær urðu síðan jafnar í fjórða til fimmta sæti í undanrásunum. Þetta er annað Íslandsmet Eyglóar á heimsmeistaramótinu en hún setti einnig Íslandsmet í 100 metra baksundi þar sem hún varð fimmtánda. Bæði Eygló ósk og Hrafnhildur Lúthersdóttir hafa þar með komist í undanúrslit í tveimur greinum á þessu eftirminnilega heimsmeistaramóti fyrir íslensk sundfólk.
Sund Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sjá meira