Austurríki skellti Svíþjóð | Spánverjar í góðri stöðu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. september 2015 20:54 Austurríki rúllaði yfir Svíþjóð á útivelli. vísir/getty
Níu leikir fóru fram í undankeppni EM 2016 í kvöld. Wayne Rooney sló markamet enska landsliðsins þegar hann skoraði seinna mark Englands í 2-0 sigri á Sviss á Wembley. England er með fullt hús stiga á toppi E-riðils en lærisveinar Roy Hogdson eru þegar búnir að tryggja sér sæti á EM í Frakklandi á næsta ári. Í sama riðli vann Slóvenía Eistland með einu marki gegn engu og Litháen vann 2-1 sigur á San Marinó. Í D-riðli steinlágu Svíar, 1-4, fyrir Austurríki á heimavelli. Martin Harnik gerði tvö mörk fyrir Austurríki og þeir David Alaba og Marc Janko sitt markið hvor. Zlatan Ibrahimovic skoraði mark Svía. Austurríki er með yfirburðastöðu á toppi riðilsins með 22 stig, átta stigum meira en Rússar sem komust upp fyrir Svía í 2. sætið með 0-7 risasigri á Liechtenstein á útivelli. Svíar eru í 3. sæti riðilsins með 12 stig, einu stigi á undan Svartfjallalandi sem vann 2-0 sigur á Moldavíu á útivelli. Evrópumeistarar Spánverja unnu 0-1 sigur á Makedóníu á útivelli í C-riðli. Eina mark leiksins var sjálfsmark Tomislav Pacovski, markmanns Makedóníu. Í sama riðli vann Hvíta-Rússland 2-0 sigur á Lúxemborg og Slóvakía og Úkraína gerðu markalaust jafntefli. Spánn situr á toppi C-riðils með 21 stig, tveimur stigum meira en Slóvakía. Úkraína er svo í 3. sætinu með 16 stig.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Sjáðu Orra fá hundrað þúsund manns til að öskursyngja Fótbolti „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti Fimmtíu fótboltastjörnur og Formúlu-ökuþór nýttu sér vændishring Fótbolti Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Enski boltinn Stórslasaður eftir að hafa verið blindfullur á hjóli Sport Skall með höfuðið í gólfið og fékk heilahristing Körfubolti Baldvin á samningi hjá Nike: „Hélt ég myndi aldrei ná svona langt“ Sport Ronaldo gæti spilað með syni sínum Fótbolti Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Fótbolti Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Enski boltinn Fleiri fréttir Fimmtíu fótboltastjörnur og Formúlu-ökuþór nýttu sér vændishring Besta spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Sjáðu Orra fá hundrað þúsund manns til að öskursyngja Ronaldo gæti spilað með syni sínum Baulað á skúrk síðustu viku en Real heldur í vonina Ótrúleg endurkoma og Inter gæti náð tvennunni Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Ísland niður um sæti en berst við tvö af þremur bestu í heimi Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Neymar æfur: „Enginn maður þolir þetta“ Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna Spjótin standa að Jóni Degi og Freyr stígur inn á milli Eðlileg skýring á tættum Laugardalsvelli KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Ungur samherji Elíasar særðist alvarlega í hnífsstungurárás Kærasta Haalands ekki sátt þegar hann kemur allur klóraður heim Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ West Ham felldi Wolves Fiorentina fjarlægist fallsætin Strákarnir hans Sigga Ragga með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjá meira