Menning

Einhvers konar dagdraumur

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Arnar og Heiðar Kári með kokteila sem eru hluti af sýningu þeirra í Harbinger. Bak við þá er verk eftir Arnar.
Arnar og Heiðar Kári með kokteila sem eru hluti af sýningu þeirra í Harbinger. Bak við þá er verk eftir Arnar. Fréttablaðið/GVA
Promesse du bonheur, eða Loforð um hamingju, nefnist sýning sem myndlistarmennirnir Heiðar Kári Rannversson og Arnar Ásgeirsson hafa opnað í Harbinger sýningarrýminu á Freyjugötu 1.

„Við erum með um það bil tíu listaverk af mismunandi toga,“ segir Heiðar Kári og tekur fram að um samvinnuverkefni sé að ræða sem vinnist á milli miðla, þangað til eitthvað verður til.

„Fyrst verður kannski til texti, svo verður til mynd, síðan hefur myndin áhrif á textann og textinn aftur áhrif á myndina á móti. Úr þessu ferli verður einhvers konar dagdraumur sem má skoða sem heildstætt verk,“ segir hann afar skáldlega.

Þegar ljósmyndarinn mundar myndavélina grípa þeir félagar ílát með litríkum kokteilum, sem þeir fullyrða að séu hluti af sýningunni.



„Þessir kokteilar eru ekki alvöru svo það er bannað að smakka á þeim. Þetta eru göróttir drykkir,“ segir Heiðar Kári ábúðarfullur.

Sýningin í Harbinger á Freyjugötu stendur til 13. desember og hún er opin fimmtudaga til laugardaga frá klukkan 14 til 17 og einnig eftir samkomulagi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.