Force Awakens þarf að afla tvö hundruð milljarða Samúel Karl Ólason skrifar 14. desember 2015 20:00 J.J. Abrams ásamt aðalleikurum myndarinnar. Vísir/EPA
Til að markaðir líti á Star Wars: The Force Awakens, sem vel heppnaða kvikmynd þurfa tekjur frá myndinni að vera 1,5 milljarður dala eða rétt tæplega 200 milljarðar króna. Þar inn spilar gífurlegur kostnaður Disney við að kaupa Lucasfilm, en framleiðslukostnaður myndarinnar var um 26 milljarðar króna. Leikstjórinn J. J. Abrams ber mikið á herðum sér þessa dagana og Steven Spielberg segir hann vera lafandi hræddan.Disney keypti Lucasfilm og þar með Star Wars árið 2012 fyrir 4 milljarða dala, sem samsvarar um fimm hundruð milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Samkvæmt umfjöllun 60 Minutes var það Steven Spielberg sem stakk upp á að J. J. Abrams fengi það verkefni að stýra Star Wars skútunni fyrir Disney. Í samtali við fréttamann 60 Minutes segir Spielberg að Abrams sé undir miklu álagi og að hann sé lafandi hræddur.The new @StarWars film has to make $1.5 billion+ to be considered a success on Wall Street. "J.J. is terrified," says Steven Spielberg— 60 Minutes (@60Minutes) December 14, 2015 Þá kemur fram að nú tekjur Force Awakens vegna forsölu séu nú þegar orðnar 50 milljónir dala eða sex og hálfur milljarður króna. Myndin verður frumsýnd nú á fimmtudaginn og er eftirvæntingin mikil. Hér heima verður myndin sýnd allan sólarhringinn í einhverjum kvikmyndahúsum, eins og í Álfabakka, á Akureyri, Kringlunni og í Smárabíó.View More: 60 Minutes News|Live News|More News Videos Star Wars allan sólarhringinn í Sambíóunum Álfabakka og Akureyri eftir miðnætti 16. desember. Miðasala er hafin í miðasölum Sambíóanna og á sambio.is.Posted by Sambíóin Fríðindaklúbbur on Friday, November 27, 2015
Bíó og sjónvarp Star Wars Mest lesið „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Viðskipti innlent „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Sjá meira