Jón Arnór missti af fjórða leiknum í röð | Valencia 27-0 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2016 20:45 Jón Arnór Stefánsson. Vísir/EPA
Bakmeiðsli Jóns Arnórs frá því um áramótin ætla að há kappanum langt fram í janúar en hann missti af leik Valencia og þýska liðsins EWE Baskets Oldenburg í Evrópukeppninni í kvöld. Valencia vann þá 19 stiga útisigur á EWE Baskets Oldenburg, 108-89, en spænska liðið var átta stigum yfir í hálfleik, 54-46. Jón Arnór Stefánsson hefur nú misst af fjórum síðustu leikjum liðsins. Hann meiddist í sigurleik á Kanaríeyjum milli jóla og nýárs og hefur nú misst af tveimur deildarleikjum og tveimur Evrópuleikjum. Sigurganga Valencia hefur haldið áfram án íslenska landsliðsmannsins en sigurinn í kvöld var 27. sigurleikur liðsins í röð í deild og Evrópukeppni. Frakkinn Antoine Diot var stigahæstur hjá Valencia með 25 stig en hann gaf einnig átta stoðsendingar og hitti úr 4 af 6 þriggja stiga skotum sínum. Valencia-liðið hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í riðlakeppni 32 liða úrslitunum en efstu tvö liðin úr þessum fjögurra liða riðli komast í átta liða úrslit keppninnar. Þjóðverjarnir voru búnir að vinna níu stiga sigur á franska liðinu Limoges í fyrsta leik á sama tíma og Valencia vann 16 stiga sigur á PAOK frá Grikklandi.
Körfubolti Mest lesið Sakaður um að öskra „Frjáls Palestína, ég vona að þið deyið“ Fótbolti Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Enski boltinn „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Körfubolti Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars Íslenski boltinn „Erum ennþá með þetta í okkar höndum“ Fótbolti „Menn eru að henda sér fyrir bolta og hlaupa úr sér lungun“ Fótbolti Sjáðu atvikið: Reiður Rúnar sá rautt Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Stúkan fer yfir magnaða helgi Sport Fleiri fréttir Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Frábær leikur Martins dugði ekki Völdu ekki Bronny af virðingu við LeBron „Hann gerir einhvern veginn alla í kringum sig betri“ Súrt tap í framlengdum leik hjá Tryggva Snæ og félögum Helena tekin inn í heiðurshöll TCU Telur að Thomas sé betri en Basile Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Njarðvík leikur í IceMar-höllinni „Verðum að vera harðari“ „Borgarnes-Bjarni grjótharður í þessum leik“ Uppgjörið: Grindavík - ÍR 100-81 | Grindavík of stór biti fyrir nýliðana Uppgjörið: Stjarnan - Valur 95-81 | Sigur gegn meisturunum í fyrsta leik Allir nema einn völdu Clark sem nýliða ársins Uppgjörið: Þór Þ. - Njarðvík 93-90 | Þór vann græna slaginn „Ennisbandið var slegið af honum“ Maté: Erum að fara að tapa fullt af leikjum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 101-108 | Hasar og læti í framlengdum leik í Forsetahöllinni Uppgjörið: Tindastóll - KR 85-94 | KR-ingar mættir aftur Uppgjörið: Haukar - Höttur 80-108 | Ótrúlega öruggur sigur Hattar í Hafnarfirði Martin mátti þola tap í fyrsta leik EuroLeague Finnur Freyr í bann fyrir lætin í Keflavík Teitur í Ljónagryfjunni: „Eitthvað við húsið og söguna sem náði því besta úr mönnum“ Gaz-leikur Pavels: Stanslaust djamm gegn bingókvöldi „Þetta var ekki fallegt en við tökum tvö stigin“ Aþena með tuttugu stiga sigur í nýliðaslagnum Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 71-64 | Baráttuglaðar Stjörnustúlkur lögðu Íslandsmeistarana Ljónagryfjan kvödd: „Hérna var sagan skrifuð“ GAZið: „Ætla að reyna aðeins meira á mig“ Haukar og Valur byrja Bónus deildina á sigrum Sjá meira