Pavel vantaði bara tvær stoðsendingar til að vinna Ægi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2016 11:00 Ægir Þór Steinarsson. Vísir/Vilhelm
Liðsfélagar úr KR áttu flestar stoðsendingar í deildarkeppni Domino´s deildar karla í körfubolta en 22. og síðasta umferðin fór fram í gærkvöldi. Það munaði ekki miklu á KR-ingunum Ægi Þór Steinarssyni og Pavel Ermolinskij og í raun vantaði Pavel bara tvær stoðsendingar í viðbót í gær til að taka efsta sætið af Ægi. Ægir Þór Steinarsson missti af þremur síðustu umferðunum en var engu að síður sá leikmaður sem gaf bæði flestar stoðsendingar í heildina (130) sem og flestar stoðsendingar að meðaltali í leik (6,84). Pavel Ermolinskij gaf 101 stoðsendingu í 15 leikjum sem gera 6,73 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hefði hann gefið tvær í viðbót í Seljaskólanum þá hefði Pavel endaði með 103 stoðsendingar eða 6,86 að meðaltali í leik. Pavel Ermolinskij gaf 9 stoðsendingar á tæpum 29 mínútum í sigrinum á ÍR í gærkvöldi. Hann var með 26 stoðsendingar í síðustu þremur leikjunum eða síðan að Ægir fór til Spánar. Það er nánast einsdæmi að samherjar skipi tvö efstu sætinu á tölfræðilista hvað þá í stoðsendingum. Pavel Ermolinskij varð þriðja árið í röð inn á topp tvö í stoðsendingum en hann gaf flestar í fyrravetur og næstflestar tímabilið 2013-14. Ægir Þór Steinarsson var að vinna þetta í þriðja skiptið á ferlinum en hann var líka með flestar stoðsendingar í leik tímabilin 2009-10 og 2010-11 en þá sem leikmaður Fjölnis.Flestar stoðsendingar í leik í Domino´s deild karla 2015-16: 1. Ægir Þór Steinarsson, KR 19/130 6.84 2. Pavel Ermolinskij, KR 15/101 6.73 3. Justin Shouse, Stjörnunni 21/117 5.57 4. Valur Orri Valsson, Keflavík 21/116 5.52 5. Kári Jónsson, Haukum 22/121 5.50 6. Jón Axel Guðmundsson, Grindavík 22/115 5.23 7. Pétur Rúnar Birgisson, Tindastóli 22/112 5.09 8. Emil Barja, Haukum 22/110 5.00 9. Tobin Carberry, Hetti 22/109 4.95 10. Al'lonzo Coleman, Stjörnunni 22/103 4.68
Dominos-deild karla Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira