Sameinaði lífeyrissjóðurinn og Stafir kanna sameiningu Sæunn Gísladóttir skrifar 4. maí 2016 16:14 Saman yrðu þeir fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn með um 10 prósent hreinna eigna lífeyrissjóðanna, alls um 310 milljarða króna. Vísir/GVA
Stjórnir Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs hafa samþykkt að hefja könnunarviðræður með sameiningu sjóðanna í huga. Hugmynd um slíkt hefur áður verið reifuð óformlega en það er ekki fyrr en nú að stjórnir sjóðanna samþykkja að láta reyna á sameiningu með formlegum hætti, segir í tilkynningu. Sameinaði lífeyrissjóðurinn er fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins ef miðað er við hlutfall hreinna eigna lífeyrissjóða og Stafir lífeyrissjóður sá níundi stærsti. Saman yrðu þeir fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn með um 10 prósent hreinna eigna lífeyrissjóðanna, alls um 310 milljarða króna. Uppbygging sjóðanna er svipuð og bakland þeirra sömuleiðis.Jón Bjarni Gunnarsson, fer formaður stjórnar Sameinaða lífeyrissjóðsins.Sameinaði lífeyrissjóðurinn varð til í ársbyrjun 1992 með sameiningu Lífeyris-sjóðs byggingarmanna og lífeyrissjóðs málm- og skipasmiða. Síðar bættust við lífeyrissjóðir bókagerðarmanna, garðyrkjumanna, múrara, verkstjóra og fleiri. Stafir lífeyrissjóður varð til við samruna Samvinnulífeyrissjóðsins og Lífeyris-sjóðsins Lífiðnar í ársbyrjun 2007. Til Stafa greiða starfsmenn fyrirtækja sem áður tilheyrðu Sambandi íslenskra samvinnufélaga og félagsmenn í Rafiðnaðar-sambandi Íslands og Matvæla- og veitingafélagi Íslands. Á dögunum sagði framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins af sér vegna tengsla við Panama-skjölin svokölluðu.
Tengdar fréttir Framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins hættur vegna Panama-skjalanna Kristján Örn Sigurðsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins. 27. apríl 2016 12:02 Mest lesið Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Viðskipti erlent Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Hulda til Basalt arkitekta Viðskipti innlent Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Fleiri fréttir Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Sjá meira
Framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins hættur vegna Panama-skjalanna Kristján Örn Sigurðsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins. 27. apríl 2016 12:02