Lífeyrissjóðir fá að fjárfesta fyrir tíu milljarða til viðbótar erlendis ingvar haraldsson skrifar 19. maí 2016 16:23 Már Guðmundsson seðlabankastjóri. vísir/vilhelm
Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að veita lífeyrissjóðum og öðrum innlendum vörsluaðilum séreignarlífeyrissparnaðar undanþágu frá gjaldeyrishöftum til að fjárfesta tíu milljörðum króna erlendis til loka júní. Lífeyrissjóðir fengu heimild til að fjárfesta fyrir tíu milljarðar króna á síðari helmingi síðasta árs og tuttugu milljarða á fyrstu þremur mánuðum ársins. Seðlabankinn segir gjaldeyrisinnstreymi það sem af er þessu ári ásamt minni óvissu um þróun greiðslujafnaðar eftir uppgjör slitabúa föllnu bankanna hafi skapað svigrúm til frekari fjárfestingar lífeyrissjóða erlendis. Seðlabankinn sé enn að safna gjaldeyri vegna fyrirhugaðs útboðs vegna aflandskróna og losunar hafta á innlenda aðila. Því hafi verið ákveðið að halda erlendum fjárfestingarheimildum lífeyrissjóðanna óbreyttum á mánaðargrundvelli. „Eins og áður eru rökin fyrir undanþágunni þau að þjóðhagslegur ávinningur fylgir því að gera lífeyrissjóðunum kleift að bæta áhættudreifingu í eignasöfnum og minnka uppsafnaða erlenda fjárfestingarþörf þeirra þegar fjármagnshöft verða losuð. Þar með er dregið úr hættu á óstöðugleika í gengis- og peningamálum við losun fjármagnshafta,“ segir í tilkynningu á vef Seðlabankans. Þá hafi hinar auknu heimildir sjóðanna hverfandi áhrif á gjaldeyrisstöðu landsins til lengri tíma litið því gera megi ráð fyrir að gjaldeyriskaup lífeyrissjóðanna á næstu mánuðum muni draga úr þörf þeirra til gjaldeyriskaupa í framtíðinni. Fjárfestingarheimildinni verður skipt á milli lífeyrissjóðanna og annarra vörsluaðila með þeim hætti að annars vegar verður horft til samtölu eigna, sem fær 80% vægi, og hins vegar til iðgjalda að frádregnum lífeyrisgreiðslum, sem fær 20% vægi.
Mest lesið Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Viðskipti erlent Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Hulda til Basalt arkitekta Viðskipti innlent Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Fleiri fréttir Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Sjá meira