Innlent

Landsnet segir niðurstöðuna hafa komið á óvart

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í dag að Landsneti væri óheimilt að taka land eignarnámi á fimm jörðum á Reykjanesi vegna byggingar Suðurnesjalínu 2. Landsnet segir ákvörðun meirihluta Hæstaréttar hafa komið á óvart og að hún muni seinka brýnum framkvæmdum við uppbyggingu flutningskerfis raforku til Suðurnesja.



Tveir dómarar töldu að staðfesta ætti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur frá 30. júní í fyrra, þar sem Landsnet og atvinnuvega og nýskipunarráðuneytið voru sýknuð af kröfum landeigenda. Meirihluti dómaranna taldi annmarka vera á eignarnámskákvörðuninni svo ógildingu varð.



Sjá einnig: Hæstiréttur fellst ekki á eignarnám vegna Suðurnesjalínu 2



Í tilkynningu frá Landsnet segir að fyrirtækið vonist til þess að seinkanir verði ekki langvarandi og að leitast verði við að lágmarka það tjón sem kunni að hljótast þeirra vegna.



„Í eignarnámsákvörðunum ráðherra og í dómum héraðsdóms var talið að samningaviðræður við landeigendur gætu ekki tekið til annarrar framkvæmdar en þeirrar sem framkvæmdaaðili hefði undirbúið í samræmi við lögbundna ferla, s.s. mat á umhverfisáhrifum og skipulagsákvarðanir sveitarfélaga. Með dómi meirihluta Hæstaréttar er horfið frá þeim sjónarmiðum og kallað eftir nýrri nálgun á grundvelli friðhelgi eignarréttar einstaklinga. Með vísan til lögbundinnar skyldu Landsnets – samkvæmt raforkulögum og stefnu stjórnvalda um lagningu raflína – verður unnið að því að bæta úr þeim annmörkum sem Hæstiréttur telur vera á eignarnámsákvörðuninni.“



Línan er skipulögð á milli Hafnarfjarðar og Grindavíkurbæjar og er hún 220 kV háspennulína.



„Unnið hefur verið að undirbúningi verkefnisins í áratug og Landsnet hefur lagt ríka áherslu á að kynna verkefnið. Það var fyrst kynnt landeigendum árið 2007, auk þess sem haldnir voru opnir fundir og sérstök heimasíða opnuð til að efla upplýsingagjöf. Öll tilskilin leyfi liggja fyrir, þ.á m. mat á umhverfisáhrifum, samþykktar skipulagsáætlanir, framkvæmdaleyfi sveitarfélaga á svæðinu, sem og leyfi Orkustofnunar. Þrátt fyrir vandaða og ítarlega málsmeðferð hefur öllum ákvörðunum stjórnvalda um leyfi verið vísað til dómstóla og/eða æðra stjórnvalds.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×