Þrjár nýjar verslanir opnaðar í Smáralind Samúel Karl Ólason skrifar 10. maí 2016 18:53 Cortefiel höfðar fyrst og fremst til karla og kvenna á aldrinum 35 til 45 ára.
Evrópska tískukeðjan Cortfiel Group ætlar að opna þrjár verslanir í Smáralindinni á þessu ári. Um er að ræða verslanirnar Cortfiel, Springfield og Women‘s Secret og stendur til að opna þær í byrjun september. „Cortefiel Group lýsir yfir ánægju með að geta hafið sókn sína inn á Norðurlandamarkað einmitt á Íslandi. Smæð markaðarins (og tískuvitund Íslendinga) gera það að verkum að hér ríkir hörð samkeppni og við erum sannfærð um að Ísland sé rétti staðurinn til að láta reyna á hvernig gengur á því svæði,“ segir Antonis Kyprianou, framkvæmdastjóri hjá Cortefiel Grupo í tilkynningu. „Við höfum undirbúið og áætlað þessa innkomu í rúmt ár. Af víðtækri reynslu um veröld víða höfum við lært að gæði og góð vörumerki ein og sér duga ekki til velgengni, heldur þarf að finna réttu samstarfsaðilana, sem deila sömu sýn og ástríðu. Eftir vandlega skoðun erum við sannfærð um að vel hafi tekist til með það val á Íslandi og við erum samstillt í sókninni. Við ætlum að bjóða upp á nýjar og spennandi vörur og vonum að íslenskir neytendur taki okkur opnum örmum.“Cortfiel er með höfuðstöðvar á Spáni en saga þess nær aftur til ársins 1880. Nú rekur fyrirtækið verslanir í 86 löndum en nýjar verslanir í Smáralind eru þær fyrstu á Norðurlöndunum. „Við erum hæstánægð með að Cortefiel skuli hafa valið Smáralind sem fyrsta vettvang verslana sinna á Norðurlöndum. Verslanirnar falla vel inn í verslanaflóru Smáralindar og eiga án efa eftir að falla vel í kramið hjá viðskiptavinum okkar,“ segir Sturla Gunnar Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Smáralindar.
Mest lesið Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Viðskipti erlent Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Hulda til Basalt arkitekta Viðskipti innlent Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Fleiri fréttir Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Sjá meira