Leiðtogar G7 ríkjanna, stærstu iðnríkja heims, segja að ákveði Bretar að yfirgefa Evrópusambandið yrði það alvarleg ógn við hagvöxt í heiminum öllum. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu sem leiðtogarnir sendu frá sér í gærkvöldi en þeir funda nú í Japan.
Í yfirlýsingunni segir að aukinn vöxtur um allan heim sé forgangsatriði þegar kemur að því að tryggja öryggi og efnahag þjóða heimsins.
David Cameron forsætisráðherra Breta berst nú fyrir því að Bretar haldi sig innan sambandsins og gefa nýjustu kannanir til kynna að þeir sem það vilji séu í örlitlum meirihluta.
G7-leiðtogar vara við Brexit
Tengdar fréttir
Ytri Evrópusamvinna gæti tekið við af ESB
Útganga Bretlands úr ESB hefur töluverð áhrif á Ísland þar sem Bretland er okkar nánasti viðskiptaaðili í Evrópu.
G7 senda Kínverjum skilaboð vegna hafsvæðisdeilna
Kínverjar, sem hafa gert tilkall til stórs svæðis í Suður-Kínahafi, segja málið ekki koma G7 þjóðunum við.