Erlent

Amber í meiðyrðamál við einn nánasta vin Johnny Depp

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Amber Heard og Johnny Depp þegar allt lék í lyndi.
Amber Heard og Johnny Depp þegar allt lék í lyndi. vísir/getty

Amber Heard leikkona og eiginkona leikarans Johnny Depp hefur höfðað meiðyrðamál á hendur grínistanum Doug Stanhope eftir að hann sakaði hana um að beita Depp fjárkúgun og ljúga til um ofbeldi sem Heard segir að Depp hafi beitt sig.

Eins og greint hefur verið frá hefur Heard sótt um skilnað frá Depp en nokkrum dögum eftir að hún sótti um skilnað fór hún fram á nálgunarbann gegn Depp sem dómari féllst á.

Daginn eftir að Depp var úrskurðaður í nálgunarbann skrifaði Stanhope, sem er einn nánasti vinur leikarans, pistil á vefsíðuna The Wrap undir yfirskriftinni „Amber Heard er að kúga fé út úr Depp – og ég veit það út af þessu.“

Í greininni sagði Stanhope að ásakanir Heard um að Depp hefði beitt hana ofbeldi væru þvæla og að hún hefði reynt að kúga fé út úr leikaranum með því að hóta honum því að hún myndi ljúga ýmsu upp á hann opinberlega ef hann gengi ekki að skilmálum hennar vegna skilnaðar þeirra.

Lögmaður Heard hefur sagt að allt sem standi í pistlinum sé rangt. Pistillinn sé meiðandi og fullyrðingar um að leikkonan sé að reyna að kúga fé út úr Depp eigi ekki við rök að styðjast.


Tengdar fréttir

Dóttir og barnsmóðir Depp koma honum til varnar

„Pabbi minn er elskulegasta manneskja sem ég þekki, hann hefur bara verið yndislegur faðir fyrir mig mig og litla bróður minn, og allir sem ég þekki myndu segja það sama.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×