Engar áhyggjur af landsliðinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. ágúst 2016 07:00 Jakob í leik með íslenska landsliðinu á EM í fyrra. vísir/valli
Einn besti körfuboltamaður sem Ísland hefur átt hin síðari ár, bakvörðurinn Jakob Örn Sigurðarson, hefur ákveðið að hætta að spila með íslenska landsliðinu. Jakob Örn er 34 ára og vill gefa sér eins mikinn tíma og hann getur fyrir fjölskyldu sína. „Mér finnst mikilvægt að geta gefið fjölskyldu minni allan þann tíma sem ég get, ekki síst strákunum mínum sem eru á þeim aldri að þeir þurfa mikla athygli foreldranna,“ segir Jakob Örn en hann hefur verið búsettur í Svíþjóð síðustu árin og nú í Borås sem er í grennd við Gautaborg. Jakob Örn lék 85 landsleiki frá 2000 til 2015, þann síðasta í úrslitakeppni Eurobasket, Evrópumótsins í körfubolta þar sem Ísland var á meðal þátttökuþjóða í fyrsta sinn. „Ég er mjög ánægður við minn landsliðsferil og geng sáttur frá honum,“ segir Jakob.Jakob lék alls 85 A-landsleiki fyrir Íslands hönd.vísir/valliHoppa ekki um borð fyrir stórmót Jakob Örn gaf ekki kost á sér í landsliðið fyrir undankeppni EM fyrir tveimur árum síðan en kom svo inn í landsliðið fyrir lokakeppnina. Hann segir útilokað að það muni aftur gerast nú ef að Ísland endurtekur leikinn og kemst á EM 2017. „Munurinn var að þá gaf ég ekki kost á mér en nú er ég einfaldlega hættur. Mér þætti það heldur ekki rétt að í hvert skipti sem að Ísland kemst á stórmót að þá hoppi ég inn. Mér líður vel með þessa ákvörðun því það eru ungir strákar að koma upp sem eru það góðir að þeir eiga skilið að fá stærra hlutverk og fleiri mínútur. Ég hef því ekki stórar áhyggjur af íslenska landsliðinu.“ Eins og sást á gengi U20 landslið Íslands á B-deild EM í sumar, sem sem strákarnir ungu unnu silfur og unnu Grikki á heimavelli í undanúrslitum, þá eru bjartir tímar fram undan í íslenskum körfubolta. „Mér finnst að það hafi gengið mjög hratt fyrir sig, hversu góðir þeir eru orðnir. Við höfum alltaf alið upp góða bakverði í íslenskum körfubolta en nú eru stórir strákar eins og Tryggvi [Hlinason] og svo alhliða góður leikmaður eins og Kristinn Pálsson að koma upp. Þetta er góð blanda fyrir landslið framtíðarinnar.“Jakob segir að Ísland geti komist aftur inn á EM.vísir/valliGetum komist aftur á EM Hann telur að Ísland eigi góða möguleika að tryggja sig inn á EM annað skiptið í röð. Siguvegari hvers riðils kemst áfram og svo fjögur af þeim sjö bestu liðum sem lenda í öðru sæti riðlanna. Ísland er í riðli með Belgíu, Sviss og Kýpur. „Belgarnir eru sterkir og það vita allir. Ég tel að við séum með betra lið en Kýpur og að þetta verði barátta á milli okkar og Svisslendinga um annað sætið. Þá verður sérstaklega mikilvægt að stemningin á heimavelli verði góð því við getum vel unnið öll þessi lið á góðum degi á heimavelli,“ segir Jakob Örn sem hugsar mjög hlýlega til þátttöku Íslands á EM í fyrra. „Þetta ævintýri fór fram úr öllum mínum væntingum og ég brosi alltaf innra með mér þegar ég hugsa um þennan tíma. Þetta var allt svo ótrúlega skemmtilegt og svo miklu stærra en ég bjóst við sjálfur. Fyrir mér var þetta toppurinn á mínum landsliðferli og ég er afar stoltur af að hafa fengið að taka þátt í þessu.“Jakob varð meistari með KR þegar hann spilaði síðast hér á landi.vísir/daníelFlytur ekki frá Svíþjóð næstu árin Það er óvíst hvað tekur við hjá Jakobi Erni þegar samningurinn við Borås rennur út. Þá verður hann 35 ára en hann segir ljóst að fjölskyldan muni ekki flytjast búferlum á næstu árum þar sem kona hans verði í námi í Gautaborg næstu árin og að fjölskyldan hafi keypt þar framtíðarhúsnæði. „Það fer allt eftir því hvernig mér líður þegar samningnum lýkur, bæði líkamlega og andlega. Ég hef mjög gaman að því að spila í dag og vonandi verður það þannig áfram. Mig langar til að spila lengur og vonandi fæ ég tækifæri til þess en það verður þá að miklum hluta undir því komið hvernig samning Borås getur boðið mér.“ Jakob spilaði síðast hér á landi með KR árið 2009 og hefur þáverandi liðsfélagi hans, Jón Arnór Stefánsson, sagt að hann vilji gjarnan koma aftur til Íslands og spila síðustu árin á ferlinum heima. Það er ólíklegt að það verði raunin hjá Jakobi. „Það kitlar vissulega og ég fylgist vel með boltanum heima. Ég horfði mikið á Körfuboltakvöld [á Stöð 2 Sport] og alltaf þegar ég horfi á leiki heima fær maður þá tilfinningu að mann langi virkilega að vera með. Maður skyldi aldrei útiloka neitt, kannski gerist það.“
Körfubolti Tengdar fréttir Jakob Örn gaf ekki kost á sér í landsliðið Sextán manna landsliðshópur tilkynntur fyrir undankeppni EM í haust. 4. ágúst 2016 10:14 Jakob Örn hættur með landsliðinu Vill gefa sér meiri tíma með fjölskyldu sinni og útilokar að hann muni gefa kost á sér fyrir EM 2017. 4. ágúst 2016 11:29 Hlynur: Verðum betra lið á hverju ári Sextán manna hópur íslenska landsliðsins í körfubolta fyrir undankeppni EM 2017 var tilkynntur í dag. 4. ágúst 2016 19:07 Mest lesið Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Körfubolti „Erum ennþá með þetta í okkar höndum“ Fótbolti „Menn eru að henda sér fyrir bolta og hlaupa úr sér lungun“ Fótbolti „Þegar þeir misstíga sig þá misstígum við okkur líka“ Fótbolti Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars Íslenski boltinn Sjáðu atvikið: Reiður Rúnar sá rautt Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-2 | Óskar Örn bjargaði stigi fyrir Víking Íslenski boltinn „Þú ert skilgreindur af nútíðinni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Frábær leikur Martins dugði ekki Völdu ekki Bronny af virðingu við LeBron „Hann gerir einhvern veginn alla í kringum sig betri“ Súrt tap í framlengdum leik hjá Tryggva Snæ og félögum Helena tekin inn í heiðurshöll TCU Telur að Thomas sé betri en Basile Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Njarðvík leikur í IceMar-höllinni „Verðum að vera harðari“ „Borgarnes-Bjarni grjótharður í þessum leik“ Uppgjörið: Grindavík - ÍR 100-81 | Grindavík of stór biti fyrir nýliðana Uppgjörið: Stjarnan - Valur 95-81 | Sigur gegn meisturunum í fyrsta leik Allir nema einn völdu Clark sem nýliða ársins Uppgjörið: Þór Þ. - Njarðvík 93-90 | Þór vann græna slaginn „Ennisbandið var slegið af honum“ Maté: Erum að fara að tapa fullt af leikjum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 101-108 | Hasar og læti í framlengdum leik í Forsetahöllinni Uppgjörið: Tindastóll - KR 85-94 | KR-ingar mættir aftur Uppgjörið: Haukar - Höttur 80-108 | Ótrúlega öruggur sigur Hattar í Hafnarfirði Martin mátti þola tap í fyrsta leik EuroLeague Finnur Freyr í bann fyrir lætin í Keflavík Teitur í Ljónagryfjunni: „Eitthvað við húsið og söguna sem náði því besta úr mönnum“ Gaz-leikur Pavels: Stanslaust djamm gegn bingókvöldi „Þetta var ekki fallegt en við tökum tvö stigin“ Aþena með tuttugu stiga sigur í nýliðaslagnum Uppgjörið: Stjarnan - Keflavík 71-64 | Baráttuglaðar Stjörnustúlkur lögðu Íslandsmeistarana Ljónagryfjan kvödd: „Hérna var sagan skrifuð“ GAZið: „Ætla að reyna aðeins meira á mig“ Haukar og Valur byrja Bónus deildina á sigrum Sjá meira
Jakob Örn gaf ekki kost á sér í landsliðið Sextán manna landsliðshópur tilkynntur fyrir undankeppni EM í haust. 4. ágúst 2016 10:14
Jakob Örn hættur með landsliðinu Vill gefa sér meiri tíma með fjölskyldu sinni og útilokar að hann muni gefa kost á sér fyrir EM 2017. 4. ágúst 2016 11:29
Hlynur: Verðum betra lið á hverju ári Sextán manna hópur íslenska landsliðsins í körfubolta fyrir undankeppni EM 2017 var tilkynntur í dag. 4. ágúst 2016 19:07