Fótbolti

Bröndby hélt í toppsætið | Hjörtur lék allan leikinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hjörtur í baráttunni við landa sinn, Kjartan Henry Finnbogason, fyrr á leiktíðinni.
Hjörtur í baráttunni við landa sinn, Kjartan Henry Finnbogason, fyrr á leiktíðinni. vísir/getty
Bröndby og FC Kobenhavn gerðu 1-1 jafntefli í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Hjörtur Hermannsson spilaði allan leikinn fyrir Bröndby.

Andrija Pavlovic skoraði fyrsta mark leiksins fyrir FCK rétt fyrir lok hálfleiksins. Andrew Hjulsager jafnaði fyrir Bröndby tuttugu mínútum fyrir leikslok. Um var að ræða algjöran toppslag í deildinni og var stemningin frábær á vellinum en leikurinn fór fram á heimavelli Bröndby.

Bröndby er því sem fyrr í efsta sæti deildarinnar með fimmtán stig og FCK í því öðru, einnig með fimmtán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×