Fótbolti

Topplið úrvalsdeildarinnar tapaði gegn neðrideildarliði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Viðar Örn Kjartansson.
Viðar Örn Kjartansson. vísir/getty
Það verður ekkert bikarævintýri hjá Malmö FF, liði Viðars Arnar Kjartanssonar, í ár.

Liðið tapaði nefnilega mjög óvænt, 3-1, fyrir B-deildarliðinu Landskrona í annari umferð bikarkeppninnar í kvöld.

Landskrona er í öðru sæti í B-deildinni en Malmö er á toppnum í úrvalsdeildinni.

Viðar Örn Kjartansson var í byrjunarliði Malmö í kvöld en náði aldrei þessu vant ekki að skora.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×