Lagt var upp með að teikna upp landslag innan þingflokksins. Vitaskuld ráða aðrar breytur en afstaða þingmanna einnig miklu um hvernig fer á Flokksþingi Framsóknarflokksins sem haldið verður um næstu helgi. Þar munu þeir berjast blóðugri baráttu um formannsstólinn þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, núverandi formaður og Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður og forsætisráðherra.
Má gera ráð fyrir 300 manns á Flokksþing
Hildur Helga Gísladóttir, formaður kjördæmaráðs Framsóknarflokksins, býst við um 200 manns á fundinn en um 330 eiga seturétt. Hún fagnar því ef smalað verður inn á fundinn vegna tillögunnar um að flýta flokksþingi. „Það er fagnaðarefni ef formenn félaga og aðrir sjá til þess að sitt fólk mæti á kjördæmaþingið,“ segir Hildur í samtali við fréttastofu.
En, það var fyrir mánuði. Nú má ætla að fleiri komi, því það er slagur á skólalóðinni. Hvert flokksfélag hefur rétt á að senda einn fulltrúa með atkvæðisrétt á flokksþing, þá fyrir hverja 15 félagsmenn. Fulltrúatala miðast við félagatal á skrifstofu 30 dögum fyrir flokksþing. Þá hafa miðstjórnarmenn flokksins atkvæðarétt.
Framsóknarmenn með böggum hildar
Allt þetta fólk er nú með böggum hildar. Ástandið innan flokksins er verra en menn geta ímyndað sér, fullyrðir einn sem Vísir ræddi við. Og staðan er svo flókin að stærðfræðinga svimar. Meirihlutinn vill ekki gefa upp afstöðu sína, og líkast til ekki að ófyrirsynju. Staða þingmanna er afskaplega flókin. En, einn sem Vísir ræddi við metur það svo að skiptingin sé tveir þriðju Sigurði Inga í hag. Sá hinn sami sagði valið ákaflega erfitt og staðan öll. Margir Framsóknarmenn eiga nú erfiða daga. Annar heimildamaður Vísis, en sá styður Sigmund Davíð, telur mjórra á munum.

Fjölmargir að hætta
Vísir hafði samband við vel flesta þingmenn Framsóknarflokksins, í suma náðist ekki en flestir þeirra vildu ekki gefa upp afstöðu sína. Það setur óneitanlega svip sinn á stöðuna, þó ekki sé beint orsakasamhengi á milli, að fjölmargir þingmenn eru að hætta eftir þetta kjörtímabil: Ásmundur Einar Daðason, Frosti Sigurjónsson, Haraldur Einarsson, Jóhanna M. Sigmundsdóttir, Vigdís Hauksdóttir og Þorsteinn Sæmundsson eftir að hafa þurft að lúta í lægra haldi fyrir Karl Garðarsson um fyrsta sæti í Reykjavík norður.

Þá má og geta þess að vandfundnir eru ákafari stuðningsmenn Sigmundar Davíðs en einmitt borgarfulltrúar flokksins, þær Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir og Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir. Þær hugsa nú Karli þegjandi þörfina og vart getur hann vænst stuðnings úr þeim búðum.
Allt leikur á reiðiskjálfi
Willum Þór Þórsson, sem ekki hefur gefið upp afstöðu sína, er annað dæmi um þingmann sem stendur frammi fyrir flókinni stöðu. Hann er í suðvesturkjördæmi, í öðru sæti á eftir Eygló Harðardóttur, sem styður Sigurð Inga. Sé miðað við skoðanakannanir er vandséð að Willum komist inn, og ef það á að verða þarf Willum á atkvæðum óánægðra Sjálfstæðismanna sem kusu Sigmund Davíð á sínum tíma. Hins vegar eru eftirtektarverð ummæli Willums strax eftir átakafund þingflokksins, sem voru á þá leið að þingflokkurinn stæði heill að baki formanninum (?) en, hann gæti vel hugsað sér að styðja Sigurð Inga. Erfitt er að fá þetta til að ganga heim og saman.

Guðni og Vigdís á öndverðum meiði
Eins og þetta sé ekki nóg; staða þeirra einstaklinga sem hafa gefið upp afstöðu sína vekur einnig upp spurningar. Er ráðgáta. Vigdís Hauksdóttir er eindregin stuðningsmaður Sigmundar Davíðs. Vigdís er hins vegar pólitísk fósturdóttir Guðna Ágústssonar, fyrrum formanns og mágkona í ofanálag. Hvernig má það vera að þau greini á í þessu stóra máli? Hafa ber í huga að Framsóknarmenn hafa í gegnum tíðina lagt ofuráherslu á einingu. En, nú er staðan sú að klofningurinn gengur inn í fjölskyldur.

Gunnar Bragi ekki strengjabrúða kaupfélagsstjóra?
Þá hefur afstaða Gunnars Braga Sveinssonar komið mörgum manninum á óvart en hann er einn einarðasti stuðningsmaður Sigmundar Davíðs. Gunnar Bragi leiðir lista Framsóknar í Norðvesturkjördæmi hvar sagður er ráða lögum og lofum Þórólfur nokkur Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðarkróki – á hinu svokallaða „Skagfirska efnahagssvæði“.
Þórólfur, sem hlutast mjög til um málefni flokksins, styður Sigurð Inga og telja heimildarmenn Vísis, úr Sigmundararmi, það til marks um að mjög sé orðum aukið að Gunnar Bragi sé strengjabrúða kaupfélagsstjórans. Nær sé að líta neðar á lista eftir slíkri brúðu og þá beinast augu manna að Elsu Láru Arnardóttur. Afstaða hennar til formannsslagsins liggur ekki fyrir en ef þessi kenning gengur upp er hún Sigurðar Inga-megin. Hvernig gengur þeim tveimur að þramma í takti í komandi kosningum og gildir þá einu hvor sigrar.
Aðrir möguleikar
Hvort aðrir möguleikar eru í stöðunni er ekki með öllu útilokað. Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra tilheyrir ekki þingflokki, en athyglisvert má heita að Gunnar Bragi dró fyrirhugað varaformannsboð sitt til baka og lýsti yfir stuðningi við Lilju. Ragnar Þór Pétursson kennari hefur fleygt fram þeirri kenningu að formannsframboð hennar gæti hreinlega orðið til að höggva á þennan mikla hnút.

„Ég mun aldrei gefast upp fyrir skíthælunum sem hafa þráð að drepa mig frá því ég byrjaði í pólitík. Ef þeim tekst ætlunarverk sitt verður það aðeins með því að þeim takist að fá framsóknarmenn sjálfa, fólkið sem ég hef verið að vinna fyrir til að sjá um aftökuna,“ er fullyrt að Sigmundur hafa sagt á fundi Framsóknarmanna fyrir norðan í pistli sem ritaður ef af manni í innsta hring.
Flokkurinn ein rúst korteri í kosningar
Þannig er allt í hnút og frændvígum innan Framsóknarflokksins. Vísir birti fyrir skemmstu fréttaskýringu þar sem greinir frá því að allir flokkar, meira og minna, muni mæta haltir til leiks. Það er mildilega til orða tekið þegar nú er litið til stöðu Framsóknarflokksins.
Einn heimildarmanna Vísis segir að við sig hafi haft samband stuðningsmenn annarra flokka sem séð hefðu tímana tvenna, hrist hausinn og tjáð sér að þau hafi aldrei séð annað eins. Aldrei. Þó átök hafi oft verið hörð á vettvangi stjórnmálanna. Menn væru að bíta hver annan á háls. Og þetta er á þriðja degi eftir að Sigurður Ingi lýsti yfir mótframboði. Fjórir dagar eru fram að Flokksþingi. Sama hver vinnur, flokkurinn verður ein rjúkandi rúst eftir þau hjaðningavíg.
Tveir armar berjast og það mun hafa afleiðingar, fólk mun segja sig af listum og svo framvegis. Sá sem sigrar hefur þá um þrjár vikur í að tjasla flokknum saman áður en til Alþingiskosninga kemur.
Uppfært 21:45
Þessi úttekt hefur verið lagfærð, í fyrri útgáfu var sagt að Guðni Ágústsson væri á Spáni. Það reyndist byggt á röngum upplýsingum og eru lesendur sem og Guðni beðinn velvirðingar á mistökunum.