Lífið

Baldwin sneri aftur sem Trump í SNL

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Alec Baldwin sem Donald Trump.
Alec Baldwin sem Donald Trump. Skjáskot
Stórleikarinn Alec Baldwin brá sér aftur í hlutverk auðkýfingsins Donald Trump í Saturday Night Live-þætti gærkvöldsins.

Frammistaða Baldwin í gervi forsetaframbjóðandans í síðustu viku vakti verðskuldaða athygli enda þótti mörgum hann ná að fanga sérkenni Trumps af mikilli list. Hið sama var upp á teningnum í gær en þar lék Washington Post-myndbandsbirtingarhneykslið lykilhlutverk.

Sjá einnig: Trump stærði sig af því að komast upp með að káfa á konum

Í innslaginu biðst Baldwin meðal annars afsökunar fyrir hönd auðkýfingsins, eða, svona næstum því.

Þetta er í annað sinn sem Baldwin hefur leikið Trump í þáttunum. Hann er þó enginn nýgræðingur þegar kemur að SNL því hann hefur verið kynnir þáttarins í sextán skipti, flest allra.

Sjá má brot úr þætti gærkvöldsins að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.