Norska Nóbelsnefndin mun tilkynna hver eða hverjir hljóta friðarverðlaun Nóbels á fréttamannafundi í Ósló sem hefst klukkan 9:00 að íslenskum tíma.
Aldrei hafa fleiri verið tilnefndir en þegar frestur rann út í febrúar höfðu 376 tilnefningar borist – 228 einstaklingar og 148 stofnanir.
Hægt verður að fylgjast með fréttamannafundinum í spilaranum að neðan.
Dagana og vikurnar fyrir fréttamannafund nefndarinnar er jafnan mikið skrafað um hver muni hreppa hnossið og er árið í ár engin undantekning.
Fyrr í vikunni reifaði Vísir hverjir þykja líklegastir til að hreppa hnossið að þessu sinni.
Túníski þjóðarsamræðukvartettinn (e. Tunisian National Dialogue Quartet) hlaut Friðarverðlaun Nóbels á síðasta ári fyrir framlag sitt til að koma á lýðræði í Túnis í kjölfar byltingarinnar í landinu 2011.
Erlent
Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels?
Tengdar fréttir
Fá Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á sviði kennilegrar þéttefnisfræði
Eðlisfræðingarnar David Thouless, Duncan Haldane og Michael Kosterlitz hlutu í dag Nóbelsverðlaun í eðlisfræði.
Þessi þykja líklegust til að hljóta friðarverðlaun Nóbels
Norska Nóbelsnefndin mun tilkynna um það hver eða hverjir hljóta friðarverðlaun Nóbels fyrir árið 2016 á föstudaginn.
Fá Nóbelsverðlaun fyrir hönnun á minnstu vélum heims
Jean-Pierre Sauvage, Sir J. Fraser Stoddart og Bernard L. Feringa hljóta Nóbelsverðlaun í efnafræði þetta árið.
Nóbelsverðlaunin: Öll tölvu- og samskiptatækni sem við nýtum er afsprengi framfara í þéttefnisfræði
Þrír breskir eðlisfræðingar hljóta Nóbelsverðlaun fyrir sögulegar og þýðingarmiklar uppgötvanir á sviði þéttefnisfræði.