Hættulegustu horn deildarinnar skiluðu Hilmari Árna stoðsendingatitlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2016 06:30 Hilmar Árni Halldórsson. Vísir/Eyþór
Hilmar Árni Halldórsson, miðjumaður Stjörnunnar, var sá leikmaður í Pepsi-deild karla sem lagði upp flest mörk fyrir félaga sína á nýloknu tímabili. Hilmar Árni hafði talsverða yfirburði í sumar en hann gaf þremur stoðsendingum meira en næstu menn. Sumarið á undan var Hilmar Árni efstur á listanum fram eftir sumri en missti síðan stoðsendingatitilinn til Blikans Kristins Jónssonar á lokasprettinum. Að þessu sinni var það góð seinni umferð sem tryggði Hilmari stoðsendingatitilinn.Líka markahæstur í Stjörnunni Hilmar Árni, sem er 24 ára gamall, var ekki aðeins stoðsendingahæstur í deildinni heldur var kappinn einnig markahæstur í markahæsta liði deildarinnar. Hilmar Árni skoraði sjálfur 7 af 43 mörkum Garðabæjarliðsins í sumar. Hilmar Árni gerði því flotta hluti á sínu fyrsta tímabili með Stjörnunni en hann þurfti samt tíma til að læra inn á nýju liðsfélagana. Fyrsta stoðsendingin hans kom ekki fyrr en í 11. umferðinni eða um miðjan júlí. Hilmar Árni lagði þá upp tvö mörk og átti stóran þátt í undirbúningi þess þriðja í sigri Stjörnumanna í Ólafsvík.Gunnar Már Guðmundsson.Vísir/Hanna Fjölnismenn efstir framan af Fjölnismaðurinn Martin Lund Pedersen var með forystuna um mitt mót en hann hins vegar gaf sína fimmtu og síðustu stoðsendingu í tólftu umferð. Annar leikmaður Grafarvogsliðsins, Gunnar Már Guðmundsson, hafði komist upp fyrir Martin Lund og verið með forystu frá og með 14. umferðinni. Gunnar Már gaf hins vegar síðustu stoðsendingu sína á tímabilinu í byrjun ágúst. Þetta varð því endasleppt hjá Fjölnismönnunum hvað varðar stoðsendingarnar og sigur Hilmars Árna var því frekar öruggur. Hilmar Árni tók forystuna með því að leggja upp tvö mörk í Vestmannaeyjum í 19. umferðinni og hélt henni eftir það. Hilmar gaf á endanum þremur fleiri stoðsendingar en Fjölnismaðurinn Gunnar Már Guðmundsson og liðsfélagi Hilmars hjá Stjörnunni, Guðjón Baldvinsson. Guðjón gaf tvær stoðsendingar í lokaumferðinni og hoppaði upp í annað sætið við hlið Gunnars Hilmar Árni gaf flestar stoðsendingar á þá Daníel Laxdal, Guðjón Baldvinsson og Baldur Sigurðsson eða tvær á hvern. Hann lagði líka upp eitt mark fyrir þá Grétar Sigfinn Sigurðarson og Hólmbert Aron Friðjónsson og svo eitt sjálfsmark. Hornspyrnur Hilmars Árna eru að skila honum stoðsendingatitlinum. Hann gaf sex af átta stoðsendingum sínum úr hornspyrnum í fyrra og að þessu sinni komu sex af níu stoðsendingum hans úr hornspyrnum. Hilmar Árni átti einnig eina stoðsendingu úr aukaspyrnu og var því heldur betur ógnandi í föstu leikatriðum Stjörnumanna í sumar.Guðjón Baldvinsson.Vísir/StefánTólf stoðsendingar úr hornum Hilmar Árni hefur því alls gefið tólf stoðsendingar úr hornspyrnum á undanförnum tveimur tímabilum. Hann er jafnframt kominn með 17 stoðsendingar í fyrstu 42 leikjum sínum í efstu deild. Hilmar Árni vann ekki bara stoðsendingarnar því hann var einnig sá leikmaður sem kom að undirbúningi flestra marka með því annaðhvort að gefa stoðsendingu eða hjálparsendingu. Hjálparsending er sending sem er ekki síðasta sending (stoðsending) en á mikinn þátt í aðdraganda marksins. Hilmar Árni fékk meiri samkeppni á þeim lista en hann átti þátt í undirbúningi þrettán marka eða einu meira en hægri bakvörður FH-liðsins, Jonathan Hendrickx.Hilmar Árni Halldórsson.Vísir/HannaFlestar stoðsendingar í Pepsi-deild karla 2016: Hilmar Árni Halldórsson, Stjarnan - 9 Gunnar Már Guðmundsson, Fjölnir - 6 Guðjón Baldvinsson, Stjarnan - 6 Martin Lund Pedersen, Fjölnir - 5 Sigurður Egill Lárusson, Valur - 5 Jonathan Hendrickx, FH - 5 Halldór Orri Björnsson, Stjarnan - 5 Morten Beck, KR - 5 Gary John Martin, Víkingur R. - 4 Pablo Oshan Punyed, ÍBV - 4 Kristinn Freyr Sigurðsson, Valur - 4 Óskar Örn Hauksson, KR - 4 Árni Vilhjálmsson, Breiðablik - 4 Arnþór Ari Atlason, Breiðablik - 4 Ívar Örn Jónsson, Víkingur R. - 4 Atli Guðnason, FH - 4 Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA - 4 Þórir Guðjónsson, Fjölnir - 4 Andri Adolphsson, Valur - 4 Vilhjálmur Pálmason, Þróttur - 4 Marcus Solberg Mathiasen, Fjölnir - 4 Bjarni Ólafur Eiríksson, Valur - 4 Denis Fazlagic, KR - 4 Kristinn Ingi Halldórsson, Valur - 4 Ævar Ingi Jóhannesson (Stjarnan), Birnir Snær Ingason, Viðar Ari Jónsson (Fjölnir), Andrés Már Jóhannesson, Víðir Þorvarðarson (Fylkir), Pálmi Rafn Pálmason, Finnur Orri Margeirsson (KR), William Da Silva (Víkingur Ó.), Þórarinn Ingi Valdimarsson, (FH), Mikkel Maigaard, Simon Smidt (ÍBV), Vladimir Tufegdzic, Alex Freyr Hilmarsson (Víkingur R.), Andri Rafn Yeoman (Breiðablik), Dion Jeremy Acoff, (Þróttur), Þórður Þ. Þórðarson, Hallur Flosason (ÍA) allir með 3 stoðsendingar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Fleiri fréttir Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Ari Leifsson í Stjörnuna Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Bónorð strax eftir leik í Garðabæ „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Uppgjörið: Stjarnan-Þór/KA 3-2 | Stjörnukonur aftur á sigurbraut Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Sjá meira