Nýr heimur fyrir Heimi í Zagreb Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. nóvember 2016 06:00 Viðar Örn Kjartansson. Vísir/Getty
Byrjunarlið íslenska fótboltalandsliðsins hefur verið í föstum skorðun undanfarin ár og að flestra mati hefur stór ástæða fyrir velgengni íslenska liðsins verið að lítið er um breytingar og leikmenn liðsins þekkja hver annan og sitt hlutverk betur en flestir. Það hafa vissulega komið upp forföll vegna meiðsla og leikbanna en þegar allir eru klárir er það á hreinu hverjir skipa byrjunarlið íslenska liðsins. Framherjastöðurnar eru þar engin undantekning en nú er komin upp óvissustaða fyrir leikinn á móti Króötum í Zagreb á laugardaginn. Liðið hefur samt verið heppið með meiðsli fram að þessari undankeppni og stefna Lars sá til þess að strákarnir hættu að fá klaufaleg spjöld í undankeppni EM 2016. Leikbönnin voru því sjaldgæf í síðustu undankeppni.Hjörvar vill sjá Viðar Örn Hjörvar Hafliðason, knattspyrnuspekingur 365 miðla, fór yfir möguleika Heimis í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hans skoðun er að Viðar Örn Kjartansson eigi að koma inn í byrjunarliðið með Jóni Daða og Selfyssingar tveir eigi þar með að sjá um sóknina í þessum toppslag í riðlinum. En treystir Heimir Viðari fyrir slíku hlutverki? Viðar hefur verið í kringum landsliðið í nokkur ár en hann hefur aldrei byrjað mótsleik, var ekki valinn í EM-hópinn og hefur aðeins spilað samanlagt rúman hálfleik í keppnisleikjum. Það væri eðlislegast að Viðar kæmi inn í liðið en Heimir gæti einnig dustað rykið af lausnum liðsins fyrir nokkrum árum. Þegar Heimir var aðstoðarmaður Lars Lagerbäck í undankeppni HM 2014 var lausnin oft að færa Gylfa Þór Sigurðsson, Birki Bjarnason eða Jóhann Berg Guðmundsson af miðjunni og í framlínuna. Eftir frábæra innkomu Jóns Daða Böðvarssonar í fyrsta leik undankeppni EM 2016 breyttist það útspil þeirra og í staðinn voru þeir Kolbeinn Sigþórsson og Jón Daði framherjapar númer eitt en Alfreð Finnbogason og Eiður Smári Guðjohnsen til vara. Eiður Smári Guðjohnsen kvaddi landsliðið á EM í Frakklandi í sumar og Kolbeinn Sigþórsson hefur ekkert verið með í þessari undankeppni vegna meiðsla. Fyrir vikið fékk Alfreð Finnbogason aftur alvöru tækifæri í framlínunni. Alfreð nýtti það tækifæri eins og sannur markaskorari og er búinn að skora í þremur fyrstu leikjum Íslands í undankeppni HM 2018. Kolbeinn er enn meiddur og nú hefur Alfreð bæst við á meiðslalistann. Björn Bergmann Sigurðarson var kominn aftur inn í liðið í haust en varð líka að draga sig út úr hópnum vegna meiðsla.Vantar 3467 mínútur Eins og sjá má í töflunni hér til hliðar vantar liðið nú framherja sem hafa spilað samtals 3.467 mínútur í 30 keppnisleikjum íslenska liðsins frá og með undankeppni HM 2014. Jón Daði Böðvarsson og Viðar Örn Kjartansson eru einu framherjarnir sem hafa spilað á þessum tíma og þeir eiga bara samanlagt 1.204 mínútur í þessum 30 leikjum. Fram undan er lykilleikur fyrir landsliðið þegar topplið riðilsins mætast.Nýtt leikkerfi? Ísland hefur haldið fast í leikkerfið 4-4-2 undanfarin ár en nú þegar bestu framherjar íslenska liðsins eru forfallaðir þyrfti ekki að koma á óvart að Heimir fækkaði í framlínunni og fjölgaði á miðjunni. Liðið er að spila á útivelli á móti gríðarlega sterku króatísku liði og framundan eru margar mínútur án bolta í þessum leik. Það væri vissulega gaman fyrir Viðar að fá sitt fyrsta alvöru tækifæri en líklegra er að Jón Daði verði einn frammi á Maksimir-leikvanginum í Zagreb á laugardaginn kemur.Mínútur framherja Íslands(Í mótsleikjum frá september 2012)Með á móti Krótatíu - 1204 mínútur Jón Daði Böðvarsson 1153 Viðar Örn Kjartansson 51Ekki með á móti Króatíu - 3467 mínútur Kolbeinn Sigþórsson 1839 Alfreð Finnbogason 1007 Eiður Smári Guðjohnsen 518 Björn Bergmann Sigurðarson 103 - Gylfi Þór Sigurðsson, Birkir Bjarnason og Jóhann Berg Guðmundsson byrjuðu allir sem framherjar í leikjum í undankeppni HM 2014.
Fótbolti Íslenski boltinn HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Körfubolti Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira