Fótbolti

Enn eitt tapið hjá Guðlaugi Victori og félögum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Victor lék allan leikinn fyrir Esbjerg.
Victor lék allan leikinn fyrir Esbjerg. vísir/getty
Guðlaugur Victor Pálsson var á sínum stað í byrjunarliði Esbjerg sem tapaði 3-0 fyrir Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Illa hefur gengið hjá Esbjerg á þessu tímabili, liðið hefur einungis unnið tvo leiki og situr í fjórtánda og neðsta sæti deildarinnar eftir 17 umferðir.

Robert Skov kom Silkeborg yfir strax á 4. mínútu. Emil Scheel jók muninn í 2-0 á 31. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Skov skoraði svo sitt annað mark og þriðja mark Silkeborg á 78. mínútu og þar við sat.

Victor lék allan tímann á miðjunni. Líkt og í síðustu leikjum bar hann fyrirliðabandið hjá Esbjerg.

Victor hefur leikið 16 af 17 leikjum Esbjerg í deildinni og skorað tvö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×