ISIS-liðar stefna að fjölgun árása í Evrópu Samúel Karl Ólason skrifar 2. desember 2016 22:55 Mohamed Lahouaiej-Bouhlel myrti 86 manns í Nice í Frakklandi í júlí. Vísir/AFP
Europol varar við því að vígamenn Íslamska ríkisins stefni að fleiri árásum í Evrópu í ljósi þess að þeir hafi tapað stórum hlutum af yfirráðasvæði sínu í Írak og Sýrlandi. Lögreglan varar við því að fjöldi vígamanna samtakanna reyni að snúa aftur til Evrópu. Þegar séu mögulega tugir þeirra komnir og tilbúnir til að fremja hryðjuverk. Í nýrri skýrslu Europol er sérstaklega varað við skotárásum og bílasprengjum. Þá er talið líklegt að forysta ISIS muni færast til Líbýu. Í skýrslunni er einnig tekið fram að hluti flóttamanna frá miðausturlöndum gætu orðið skotmörk vígamanna sem reyni að fá fólk til að ganga til liðs við hryðjuverkasamtökin. Markmið þeirra sé að valda deilum meðal íbúa Evrópu og andstöðu gegn flóttafólki. Ógnin er ekki einungis vegna vígamanna ISIS heldur einnig einstakra aðila sem aðhyllast boðskap samtakanna. Þar að auki sé Íslamska ríkið ekki ógnin heldur einnig al-Qaeda og systursamtök þeirra. Í samtali við BBC segir Rob Wainwright, yfirmaður Europol, að aukin samvinna öryggisstofnanna Evrópu hafi þegar dregið úr möguleikum á stórum árásum, en ekki megi sofna á verðinum.10 key judgements of Europol's report: Changes in Modus Operandi of #IS revisited. Further attacks in the #EU, likely to be attempted. #ISIS pic.twitter.com/BH0ZgXtVP7— Europol (@Europol) December 2, 2016
Hryðjuverk í Evrópu Mest lesið Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Innlent Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Svarar Kára fullum hálsi Innlent Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Erlent Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Innlent Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Erlent Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Innlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Mega fresta kosningu í allt að viku verði óveður á laugardag Innlent Fleiri fréttir Umfangsmiklar árásir fyrir væntanlegt vopnahlé Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Annarri ákærunni formlega vísað frá Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Saksóknari fellur frá ákærum á hendur Trump Ísrael og Hezbollah sögð við það að gera vopnahlé Ólöglegir og löglegir innflytjendur afar uggandi um framtíð sína Óvæntar niðurstöður í fyrri umferð kosninga í Rúmeníu Scholz verður kanslaraefni Jafnaðarmanna Konur í mestri hættu innan veggja heimilisins Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Hezbollah svarar Ísrael með umfangsmikilli loftárás Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Sjá meira