Liðsfélagi Balotelli: Hann vill ekkert með okkur hafa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. febrúar 2017 11:00 Mario Balotelli. Vísir/Getty
Það mátti svo sem búast við því að öskubuskuævintýri Mario Balotelli entist ekki lengi í Nice. Eftir frábæra byrjun virðist ítalski framherjinn vera búinn að koma sér í ónáð hjá liðsfélögunum. Mario Balotelli skoraði átta mörk í fyrstu átta leikjum tímabilsins og Nice var öllum á óvörum í toppsæti frönsku deildarinnar. Það leit út sem að vandræðagemlingurinn Balotelli væri loksins búinn að finna sér stað við hæfi. Nice hefur hinsvegar ekki haldið út (bara 3 sigrar í síðustu 9 leikjum) og Mario Balotelli hefur aðeins skorað einu sinni í síðustu fimm leikjum sínum. Það sem er kannski alvarlega er að liðsfélagarnir eru farnir að kvarta undan hegðun hans. Miðjumaðurinn Valentin Eysseric er sá sem hefur gengið lengst í að gagnrýna hann og hann var ekki sáttur með Mario Balotelli eftir leik um helgina. Balotelli missti af honum þar sem hann lá heima með flensu. „Fyrirgefið en ég er bara heiðarlegur,“ segir Valentin Eysseric við Bein Sports. Hann segir Balotelli fara sem dæmi í mikla fýlu þegar hann klúðrar færum á æfingum og talar þá við engan eftir æfingu. „Það er undir honum komið að hugsa meira um liðið og það sem hjálpar okkur,“ sagði Eysseric. „Það lítur út fyrir að hann (Balotelli) vilji bara ekkert með okkur hafa. Það eru mikil vonbrigði. Við gætum virkilega þegið hjálp frá honum í þessari baráttu,“ sagði Eysseric. „Þjálfarinn heimtar að allir í liðinu leggi sitt á vogarskálarnar. Hann mun ekki sætta sig við að menn taki fótinn af bensíngjöfinni eins og við erum að sjá með Balotelli,“ sagði Eysseric.
Fótbolti Mest lesið Vonn á batavegi eftir þriðju aðgerðina Sport Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Sport Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Enski boltinn Orri fagnaði sætum bikarsigri í Baskalandi Fótbolti Real Madrid lúffar fyrir UEFA í deilum um Ofurdeildina Fótbolti Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Sport Reynir markahæstur hjá Melsungen og Gísli gerði mest fyrir Magdeburg Handbolti Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport „Ég skil ekki hvernig fólk getur skrifað svona“ Sport Guðrún gerði sér góða ferð til Portúgal Fótbolti Fleiri fréttir Real Madrid lúffar fyrir UEFA í deilum um Ofurdeildina Guðrún gerði sér góða ferð til Portúgal Orri fagnaði sætum bikarsigri í Baskalandi Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Heppnin með Bayern á leið í langþráð undanúrslit Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki Sverrir heimsótti óvinnandi vígi Viktor fór illa með færin en fagnaði sigri gegn Ísaki Sjö marka skellur hjá Blikum í Svíþjóð City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Hörður Björgvin fiskaði rautt en féll úr leik í bikarnum „Þetta er allt annað dæmi“ Atvinnulaus Jóhann kallaður í landsliðið Íslenska deildin byrjar langsíðust Hætti við að panta flug til London og samdi í staðinn til 2028 Frank rekinn frá Tottenham Mætt í fyrsta sinn til Evrópu og klár í erfiða áskorun með Blikum í dag Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Mögulegur framtíðarstjóri Manchester United missir starfið Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tómas hetjan á dramatískan hátt í Edinborgarslagnum Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Stórsér á Jóni Degi eftir fyrstu dagana í Brann Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Sjá meira